Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Bláa tunnan, tilboð vegna hráefni.

Málsnúmer: 1209394

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1066. fundur

Framkvæmdaráð samþykkir að svo stöddu að ekki verði fallist á tilboðið og að fylgst verði með markaðnum. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu framkvæmdaráðs með sjö atkvæðum en þrír sátu hjá við afgreiðslu málsins. Einn bæjarfulltrúi var fjarverandi.

02

Bæjarráð - 2659. fundur

Framkvæmdaráð samþykkir að svo stöddu að ekki verði fallist á tilboðið og að fylgst verði með markaðnum.

Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

03

Framkvæmdaráð - 40. fundur

Frá deildarstjóra eignadeildar.

Gunnar I. Birgisson vék af fundi undir þesum lið. Ólafur Þ. Gunnarsson og Pétur Ólafsson bóka:: Við minnum á bókun okkar frá 26. september sl. sem var svohljóðandi: "Undirritaðir telja eðlilegt að breytingar á sorphirðu séu ræddar á eigendavettvangi Sorpu og að kaup og sala á þjónustu utan að komandi aðila sé gerð í gegn um útboð."Framkvæmdaráð samþykkir að svo stöddu að ekki verði fallist á tilboðið og að fylgst verði með markaðnum.

04

Bæjarstjórn - 1064. fundur

Tillaga formanns framkvæmdaráðs: $line$"Tilboði Íslenska gámafélagsins verði tekið til reynslu og miðist við að verðin gildi í þrjá mánuði í stað eins mánaðar skv. tilboðinu."$line$Tillagan féll á jöfnum atkvæðum, einn sat hjá. Formaður vísar erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.$line$

Gunnar Ingi Birgisson vék af fundi undir þessum lið.Til máls tók Guðríður Arnardóttir og lagði til að tillögunni verði vísað frá.Þá tók til máls Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri. Hlé var gert á fundi kl. 19:16. Fundi var fram haldið kl. 19:18. Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, lagði til erindi Íslenska gámafélagsins verði vísað til efnismeðferðar í framkvæmdaráði.Tillaga Ármanns Kr. Ólafssonar var samþykkt með níu samhljóða atkvæðum. Einn bæjarfulltrúi greiddi ekki atkvæði.

05

Bæjarráð - 2656. fundur

Tillaga formanns framkvæmdaráðs: $line$"Tilboði Íslenska gámafélagsins verði tekið til reynslu og miðist við að verðin gildi í þrjá mánuði í stað eins mánaðar skv. tilboðinu."$line$Tillagan féll á jöfnum atkvæðum, einn sat hjá. Formaður vísar erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.$line$

Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.