Kópavogsgerði 1-3, 5-7 og Kópavogstún 10-12
Málsnúmer: 1209400
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2664. fundur
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 28. nóvember, umsögn um erindi Veritas ehf., f.h. Mótanda ehf., sem óskað var eftir í bæjarráði 22. nóvember sl.
Bæjarráð hafnar erindinu.
02
Bæjarráð - 2663. fundur
Frá Veritas ráðgjöf slf., dags. 19. nóvember, óskað eftir endurskoðun á verði byggingarréttar á lóðunum Kópavogsgerði 1-3, 5-7 og Kópavogstúni 10-12.
Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra umhverfissviðs til umsagnar.
03
Bæjarráð - 2656. fundur
Lögð eru fram gögn sex aðila með umsókn um lóðina Kópavogsgerði 5-7. Þrjú fyrirtæki uppfylla skilyrði Kópavogsbæjar til úthlutunar og eru jafnir eftir mat á umsóknum. Sérverk ehf., og Mótandi ehf. hafa þegar verið dregin um aðrar lóðir og S.Þ. verktakar ehf. því einu umsækjendurnir sem eftir standa um lóðina með fullnægjandi umsókn. Lagt er til við bæjarráð að S.Þ. ehf. verktökum verði úthlutað lóðinni Kópavogsgerði 5-7.
Bæjarráð samþykkir að gefa S.Þ. verktökum ehf., kt. 550393-2399, kost á byggingarrétti á lóðinni Kópavogsgerði 5-7 og vísar málinu til staðfestingar bæjarstjórnar.
04
Framkvæmdaráð - 39. fundur
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs.
<P style="MARGIN: 0cm 0cm 10pt" class=MsoNormal><FONT size=3 face=Calibri>Lögð eru fram gögn sex aðila með umsókn um lóðina Kópavogsgerði 5-7. Þrjú fyrirtæki uppfylla skilyrði Kópavogsbæjar til úthlutunar og eru jafnir eftir mat á umsóknum. Sérverk ehf., og Mótandi ehf. hafa þegar verið dregin um aðrar lóðir og S.Þ. verktakar ehf. því einu umsækjendurnir sem eftir standa um lóðina með fullnægjandi umsókn. </FONT><FONT size=3 face=Calibri>Lagt er til við bæjarráð að S.Þ. ehf. verktökum verði úthlutað lóðinni Kópavogsgerði 5-7.</FONT></P>