Til baka í fundargerðir
Fyrirmynd að samþykktum um stjórn bæjarins.
Málsnúmer: 1209444
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2655. fundur
Bæjarráð Kópavogs vekur athygli á því að ekki liggur fyrir fyrirmynd að samþykktum um stjórn sveitarfélaga, sem innanríkisráðuneyti ber að vinna. Samkvæmt sveitarstjórnarlögum ber að endurskoða samþykktir um stjórn bæjarins fyrir árslok en vinna við þá endurskoðun getur ekki hafist fyrr en fyrirmynd ráðuneytisins liggur fyrir. Því skorar bæjarráð á innanríkisráðuneytið að leggja fram fyrirmynd að samþykktum sem allra fyrst eða beita sér ella fyrir því að frestur verði veittur sveitarfélögum til að endurskoða samþykktirnar.