Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Bæjarráð, 4. október

Málsnúmer: 1210001F

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1064. fundur

2656. fundur

Til máls tóku Gunnar Ingi Birgisson um liði 20 og 21, Ómar Stefánsson um liði 20, 47 og 56, Hafsteinn Karlsson um liði 47, 45 og 20 og óskaði eftir úrskurði um hæfi Gunnars Inga Birgissonar til að taka þátt í afgreiðslu á liði 20 og Ólafur Þór Gunnarsson um liði 47 og 20.Hlé var gert á fundi kl. 16:38. Fundi var fram haldið kl. 16:50.Gunnar Ingi Birgisson tók til máls um stjórn fundarins og tilkynnti um að hann viki af fundi undir afgreiðslu á lið 20. Þá tóku til máls Hafsteinn Karlsson, Hjálmar Hjálmarsson, Guðríður Arnardóttir, Ómar Stefánsson, Guðríður Arnardóttir, Ólafur Þór Gunnarsson um stjórn fundarins. Forseti bar undir fundinn með vísan til 23. gr. samþykkta um stjórn Kópavogsbæjar hvort mál undir lið 20 sé svo vaxið að Gunnar Ingi Birgisson sé vanhæfur til taka þátt í afgreiðslu þess.Bæjarstjórn úrskurðar Gunnar Inga Birgisson vanhæfan til að taka þátt í afgreiðslu á máli undir lið 20 með fimm samhljóða atkvæðum en fimm bæjarfulltrúar sátu hjá. Gunnar Ingi Birgisson vék af fundi við afgreiðslu málsins.Til máls tóku Aðalsteinn Jónsson um lið 47, Rannveig Ásgeirsdóttir um lið 47, Hjálmar Hjálmarsson um liði 20, 43, 44 og 56, Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, um liði 44, 43 og 47, Guðríður Arnardóttir um liði 44, 47 og 65, Gunnar Ingi Birgisson um liði 65 og 44 og Ómar Stefánsson um lið 44 og lagði fram eftirfarandi tillögu:<EM>"Legg til að Gunnari Inga Birgissyni, Aðalsteini Jónssyni og Guðríði Arnardóttur verði falið að laga núverandi tímatöflur og leggi fram drög að tímatöflum fyrir haustið 2013.</EM><EM>Ómar Stefánsson"</EM>Þá fjallaði Ómar Stefánsson um lið 47. Þá tóku til máls Hjálmar Hjálmarsson um liði 44 og 47 og Ómar Stefánsson, sem bar af sér sakir. Þá tóku til máls Hafsteinn Karlsson um lið 47, Ólafur Þór Gunnarsson um lið 47, Hjálmar Hjálmarsson, sem bar af sér sakir, Aðalsteinn Jónsson um lið 47 og 44, Rannveig Ásgeirsdóttir um lið 47, Gunnar Ingi Birgisson um lið 47 og 44 og lagði fram eftirfarandi tillögu:<EM>"Lagt er til við bæjarstjorn að þær smávægilegu breytingar á tímatöflum í íþróttahúsum bæjarins fyrir veturinn 2012-2013 verði unnar í góðu samkomulagi við íþróttafélögin og verði klárar til afgreiðslu á næsta fundi bæjarstjórnar.</EM><EM>Gunnar Ingi Birgisson"</EM>Þá tóku til máls Guðríður Arnardóttir um lið 47 og Ármann Kr. Ólafsson um liði 47 og 44.Hlé var gert á fundi kl. 18:32. Fundi var fram haldið kl. 19:08.Forseti bar undir fundinn tillögu Ómars Stefánssonar og var hún felld með sjö atkvæðum en einn bæjarfulltrúi greiddi atkvæði með henni. Tveir bæjarfulltrúar sátu hjá og einn bæjarfulltrúi var fjarverandi.Hlé var gert á fundi kl. 19:09. Fundi var fram haldið kl. 19:10.Forseti bar undir fundinn tillögu Gunnars Inga Birgissonar og var hún felld með sex atkvæðum en þrír greiddu atkvæði með henni. Tveir bæjarfulltrúar sátu hjá.