Málskostnaður fyrrum stjórnarmanna Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar.
Málsnúmer: 1210010
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2658. fundur
Frá Lífeyrissjóði starfsmanna sveitarfélaga, dags. 26. september, óskað umsagnar bæjarráðs varðandi mögulega greiðslu málskostnaðar, mál sem frestað var í bæjarráði 4. október sl.
Hlé var gert á fundi kl. 9:24. Fundi var fram haldið kl. 9:30.Bæjarráð telur eðlilegt að ákvörðun um greiðslu málskostnaðar verði tekin með sjálfstæðum hætti af stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar og mun ekki, sem ábyrgðaraðili á skuldbindingum og rekstrarkostnaði sjóðsins, gera athugasemdir við afgreiðslu stjórnarinnar.Ómar Stefánsson vék af fundi undir þessum lið.
02
Bæjarráð - 2656. fundur
Frá Lífeyrissjóði starfsmanna sveitarfélaga, dags. 26. september, óskað umsagnar bæjarráðs varðandi mögulega greiðslu málskostnaðar.
Bæjarráð frestar afgreiðslu erindisins. Ómar Stefánsson vék af fundi undir þessum lið.