Breiðahvarf 4 og Funahvarf 3. Breytt deiliskipulag
Málsnúmer: 1210126
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1113. fundur
Lögð fram breytt tillaga skipulags- og byggingardeildar að breyttu deiliskipulagi Breiðahvarfs 4 og Funahvarfs 3, dags. 16.3.2015. Á fundi skipulagsnefndar 19.1.2015 var málinu frestað. Lagður fram uppfærður deiliskipulagsuppdráttur fyrir Breiðahvarf 4 og Funahvarf 3, sbr. ofangreint. Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna með áorðnum breytingum ásamt umsögn dags. 16.3.2015 með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.$line$
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 10 atkvæðum. Einn bæjarfulltrúi, Ólafur Þór Gunnarsson, greiddi ekki atkvæði.
02
Bæjarráð - 2767. fundur
Lögð fram breytt tillaga skipulags- og byggingardeildar að breyttu deiliskipulagi Breiðahvarfs 4 og Funahvarfs 3, dags. 16.3.2015. Á fundi skipulagsnefndar 19.1.2015 var málinu frestað. $line$Lagður fram uppfærður deiliskipulagsuppdráttur fyrir Breiðahvarf 4 og Funahvarf 3, sbr. ofangreint. $line$Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna með áorðnum breytingum ásamt umsögn dags. 16.3.2015 með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
03
Skipulagsnefnd - 1255. fundur
Lögð fram breytt tillaga skipulags- og byggingardeildar að breyttu deiliskipulagi Breiðahvarfs 4 og Funahvarfs 3 dags. 16.3.2015. Á fundi skipulagsnefndar 19.1.2015 var málinu frestað. Breytingar sem hafa verið gerðar frá kynntri tillögu dags. 5.11.2014 eru:$line$1. Aðkoma verður frá Funahvarfi í stað Faxahvarfs áður.$line$2. Raðhús á suðvesturhorni lóðar verða á einni hæð í stað tveggja hæða áður. Byggingarreitir þeirra breytast og færast til, lóðamörk innan skipulagssvæðis breytast. $line$3. Ný lóð fyrir Breiðahvarf 4a er stækkuð og verður um 1000m2 í stað 650m2 áður. Einnig færist byggingarreitur Breiðahvarfs 4a um 1,5m til vesturs, fjær Breiðahvarfi 6. $line$4. Settar eru kvaðir um gróður á suðausturhluta Breiðahvarfs 4a og norðausturhluta húss nr. 17 við Húsagötu A.$line$$line$Lagt fram minnisblað frá samráðsfundi sem haldinn var 12.3.2015 með þeim íbúum sem gerðu athugasemdir við kynnta tillögu.$line$$line$Lagður fram uppfærður deiliskipulagsuppdráttur fyrir Breiðahvarf 4 og Funahvarf 3 sbr. ofangreint. Uppdráttur ásamt greinargerð og skýringarmyndum í mkv. 1:2000 og 1:500 dags. 16.3.2015. Þá lögð fram greinargerð með athugasemdum og ábendingum ásamt umsögnum um athugasemdir og ábendingar er bárust á kynningartíma og fylgiskjölum dags. 16. mars 2015.
Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna með áorðnum breytingum ásamt umsögn dags. 16.3.2015 með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
04
Skipulagsnefnd - 1254. fundur
Lögð fram að nýju tillaga skipulags- og byggingardeildar að breyttu deiliskipulagi fyrir Breiðahvarf 4 og Funahvarf 3. Á fundi skipulagsnefndar 19.1.2015 var málinu frestað og skipulagsnefnd fól skipulags- og byggingardeild að vinna áfram að málinu og að boða til samráðsfundar með þeim sem gerðu athugasemdir við framlagða tillögu.$line$$line$Lögð fram drög að breyttri tillögu þar sem komið hefur verið til móts við innsendar athugasemdir. Til stendur að boða íbúa til samráðsfundar þar sem breytt tillaga verður kynnt.
Staða málsins kynnt. Boðað verður til samráðsfundar með aðilum máls.
05
Skipulagsnefnd - 1252. fundur
Lögð fram að nýju tillaga skipulags- og byggingardeildar að breyttu deiliskipulagi fyrir Breiðahvarf 4 og Funahvarf 3. Á fundi skipulagsnefndar 22.9.2014 var samþykkt með tilvísan til 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu. Kynningu lauk 29.9.2014. Athugasemdir og ábendingar bárust frá: Haraldi Erlendssyni og Svanhildi Sigurðardóttur, Breiðahvarfi 6, dags. 17.11.2014; Hákoni Hrafni Sigurðssyni og Þórhöllu Gunnarsdóttur, Faxahvarfi 8, dags. 28.12.2014; Sigríði Sóleyju Hafliðadóttur, Óla Má Ólasyni, Brynjari Inga Ólasyni og Elmari Andra Ólasyni, Faxahvarfi 6, dags. 28.12.2014; frá Svövu Aldísi Viggósdóttur og Sigurði Hafsteinssyni, Faxahvarfi 4, dags. 28.12.2014; Frá Atla Ómarssyni, Faxahvarfi 10, dags. 29.12.2014; Frá Huldu Kristínu Sigmarsdóttur, Faxahvarfi 2, dags. 29.12.2014; Frá Elísabetu Ásberg Árnadóttur, Faxahvarfi 3, dags. 29.12.2014; frá Frosta Rey Rúnarssyni, Faxahvarfi 12, dags. 29.12.2014.
Frestað. Skipulagsnefnd fól skipulags- og byggingardeild að vinna áfram að málinu og að boða til samráðsfundar með þeim sem gerðu athugasemdir við framlagða tillögu.
06
Bæjarstjórn - 1103. fundur
Skipulagsnefnd samþykkir með tilvísan til 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$Bæjarráð vísaði erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum að framlögð tillaga verði auglýst með tilvísan til 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
07
Bæjarráð - 2744. fundur
Lögð fram tillaga skipulags- og byggingardeildar að breyttu deiliskipulag fyrir Breiðahvarf 4 og Funahvarf 3. Skipulagsnefnd samþykkir með tilvísan til 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
08
Skipulagsnefnd - 1245. fundur
Lögð fram tillaga skipulags- og byggingardeildar að breyttu deiliskipulag fyrir Breiðahvarf 4 og Funahvarf 3. Samkvæmt gildandi deiliskipulagi frá 2002 er gert ráð fyrir leikskóla á einni hæð á lóðinni Funahvarf 3 með aðkomu frá Funahvarfi. Í nýju Aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024 var landnotkun lóðarinnar breytt í íbúðarsvæði. Í framlagðri tillögu er gert ráð fyrir þremur raðhúsum á 0.6 ha svæði, á einni til tveimur hæðum, alls 11 íbúðir með innbyggðum bílskúr. Aðkoma verður frá Faxahvarfi. Grunnflötur fyrirhugaðra húsa er 90 til 140 m2.$line$$line$Tillagan nær jafnframt til lóðarinnar að Breiðahvarfi 4 sem er liðlega 4.700 m2 að flatarmáli. Á lóðinni stendur einbýlishús á einni hæð byggt 1956, um 180 m2 að grunnfleti og tvær geymslur samtals liðlega 50 m2 byggðar 1956 og 1987 auk safns um 95 m2 byggt 1996. Samkvæmt gildandi deiliskipulagi lóðarinnar er heimilt að reisa 350m2 einbýlishús á einni til tveimur hæðum í stað einbýlishússins frá 1956. Þá er heimilt að reisa 645m2 hesthús með 16 stíum ásamt hlöðu og sýningar- og tamningaskóla. Leyfilegt heildarbyggingarmagn á lóð er um 1.200 m2 samkvæmt gildandi deiliskipulagi. Í breytingunni felst að núverandi byggingar á lóðinni standi óbreyttar en jafnframt verði afmarkaða nýjar lóðir fyrir tvö tveggja hæða parhús, þar sem grunnflötur hvors parhúss fyrir sig er áætlaður 180 m2 (2x90 m2) að stærð, í suðurhluta lóðarinnar með aðkomu frá Faxahvarfi og að auki tveggja hæða einbýlishús um 150m2 að grunnfleti á norður-austurhluta lóðarinnar með aðkomu frá Breiðahvarfi.$line$$line$Lagt fram ásamt skipulagsskilmálum dags. 22.9.2014 og uppdrætti dags. 15.9.2014.
Skipulagsnefnd samþykkir með tilvísan til 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.
09
Skipulagsnefnd - 1244. fundur
Lögð fram tillaga skipulags- og byggingardeildar að breyttu deiliskipulag fyrir Breiðahvarf 4 og Funahvarf 3. Í breytingunni felst að á lóðinni við Breiðahvarf 4 veða afmarkaðar nýjar lóðir fyrir tvö parhús og eitt sérbýli. Á lóðinni við Funahvarf 3 er lagt fram nýtt deiliskipulag fyrir íbúðabyggð, blöndu af rað- og parhúsum 160-190m2 að stærð sbr. uppdráttum dags. 15.9.2014.
Frestað til næsta fundar.
10
Skipulagsnefnd - 1235. fundur
Kynntar hugmynd skipulags- og byggingardeildar að breyttu deiliskipulagi fyrir Breiðahvarf 4 og Funahvarf 3 dags. 15.1.2013.
Lagt fram og kynnt. Afgreiðslu frestað.
11
Skipulagsnefnd - 1217. fundur
Lögð fram drög skipulags- og byggingardeildar Kópavogs að breyttu deiliskipulagi fyrir lóðirnar Breiðahvarf 4 og Funahvarf 3. Í gildandi deiliskipulagi er gert ráð fyrir leikskóla við Funahvarf 3 en í drögunum felst að í staðinni koma 5 parhús á 2 hæðum. Bílastæði á hverri lóð verða fjögur. Á lóðinni Breiðahvarf 4 er í dag einbýlishús ásamt stakstæðri bílgeymslu og geymslu. Þessar byggingar verða óbreyttar á sér lóð. En hætt er við byggingu 16 stía hesthúss ásamt sýningar- og tamningarskála og þess í stað byggð tvö parhús með aðkomu frá Faxahvarfi og einbýli á tveimur hæðum austan við núverandi byggingar.Uppdrættir í mkv. 1:1000 og 1:2000 ásamt skýringarmyndum dags. 12. október 2012.
Frestað.