Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Dalaþing 3 - Breytt deiliskipulag

Málsnúmer: 1210144

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1089. fundur

Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju tillaga Sigurðar Hafsteinssonar, byggingartæknifræðings, f.h. lóðarhafa að breyttu deiliskipulagi Dalaþings 3. Sótt er um að stækka núverandi íbúðarhús þannig að grunnflötur þess verði 175m2 að stærð sem er 75m2 minna en gildandi skilmálar gera ráð fyrir. Stærð byggingarreits verður 9,5m x 18m sbr. uppdrætti dags. 12.11.2013. Á fundi skipulagsnefndar 10. desember 2013 var samþykkt með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða breytingartillögu fyrir lóðarhöfum Dalaþings 1, 2, 4, og 5 ásamt Frostaþings 2, 2a og 4. Engar athugasemdir og ábendingar bárust. Skipulagsnefnd samþykkir framlagða breytingartillögu. $line$Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$Bæjarráð vísaði tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 atkvæðum.

02

Bæjarráð - 2716. fundur

Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju tillaga Sigurðar Hafsteinssonar, byggingartæknifræðings, f.h. lóðarhafa að breyttu deiliskipulagi Dalaþings 3. Sótt er um að stækka núverandi íbúðarhús þannig að grunnflötur þess verði 175m2 að stærð sem er 75m2 minna en gildandi skilmálar gera ráð fyrir. Stærð byggingarreits verður 9,5m x 18m sbr. uppdrætti dags. 12.11.2013. Á fundi skipulagsnefndar 10. desember 2013 var samþykkt með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða breytingartillögu fyrir lóðarhöfum Dalaþings 1, 2, 4, og 5 ásamt Frostaþings 2, 2a og 4. Engar athugasemdir og ábendingar bárust.$line$$line$Skipulagsnefnd samþykkir framlagða breytingartillögu. $line$$line$Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$

Bæjarráð vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.

03

Skipulagsnefnd - 1235. fundur

Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju tillaga Sigurðar Hafsteinssonar, byggingartæknifræðings, f.h. lóðarhafa að breyttu deiliskipulagi Dalaþings 3. Sótt er um að stækka núverandi íbúðarhús þannig að grunnflötur þess verði 175m2 að stærð sem er 75m2 minna en gildandi skilmálar gera ráð fyrir. Stærð byggingarreits verður 9,5m x 18m sbr. uppdrætti dags. 12.11.2013. Á fundi skipulagsnefndar 10. desember 2013 var samþykkt með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða breytingartillögu fyrir lóðarhöfum Dalaþings 1, 2, 4, og 5 ásamt Frostaþings 2, 2a og 4. Engar athugasemdir og ábendingar bárust.

Skipulagsnefnd samþykkir framlagða breytingartillögu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

04

Skipulagsnefnd - 1233. fundur

Lögð fram tillaga Sigurðar Hafsteinssonar, byggingartæknifræðings, f.h. lóðarhafa að breyttu deiliskipulagi Dalaþings 3. Sótt er um að stækka núverandi íbúðarhús þannig að grunnflötur þess verði 175m2 að stærð sem er 75m2 minna en gildandi skilmálar gera ráð fyrir. Stærð byggingarreits verður 9,5m x 18m sbr. uppdrætti dags. 12.11.2013.

Skipulagsnefnd samþykkir með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndakynna framlagða breytingartillögu fyrir lóðarhöfum Dalaþings 1, 2, 4, og 5 ásamt Frostaþings 2, 2a og 4.

05

Bæjarstjórn - 1070. fundur

Skipulagsnefnd hafnaði erindinu á grundvelli athugasemda og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar til staðfestingar.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar og hafnar erindinu einróma.

06

Bæjarráð - 2670. fundur

Skipulagsnefnd hafnar tillögunni á grundvelli umsagnar skipulags- og byggingadeildar og vísar henni til bæjarráðs og bæjarstjórnar til staðfestingar.

Bæjarráð vísar tillögunni til bæjarstjórnar til staðfestingar.

07

Skipulagsnefnd - 1221. fundur

Að lokinni kynningu er lagt fram að nýju erindi Sigurðar Hafsteinssonar, byggingartæknifræðings, f.h. lóðarhafa að breyttu deiliskipulagi fyrir Dalaþing 3. Í breytingunni felst að byggingarreitur stækkar sem samsvarar núverandi reit samþykktrar bílageymslu og verður 9.5m x 22m að stærð. Byggingarreitur stækkar til suðvesturs um 6m. Hámarksgrunnflötur húss með bílageymslu verður 185m2. Heildarstærð húss verður 350m2. Hámarksgrunnflötur hesthúss verður 68m2 og byggingarreitur er óbreyttur. Gólfkóti hesthúss lækkar um 0,4m og nýting verður í risi. Nýtingahlutfall lóðar hækkar úr 0,17 í 0,38 sbr. teikningum dags. 23. september 2012 í mkv. 1:500 og 1:2000. Á fundi skipulagsnefndar 16. október 2012 var samþykkt með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að kynna erindið fyrir lóðahöfum Frostaþings 1, 2, 2a, Dalaþings 2, 4, 5. Kynningu lauk 14. desember 2012. Athugasemd barst frá Jóhanni Þór Jóhannssyni og Helenu Sigurðardóttur, Dalaþingi 1. Lagt fram að nýju ásamt og umsögn skipulags- og byggingarsviðs um framkomna athugasemd dags. 15. janúar 2013.

Skipulagsnefnd tekur undir umsögn skipulags- og byggingadeildar um framkomnar athugasemdar og hafnar því tillögunni. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar til staðfestingar.

08

Skipulagsnefnd - 1217. fundur

Lagt fram erindi Sigurðar Hafsteinssonar, byggingartæknifræðings, f.h. lóðarhafa. Í breytingunni felst að byggingarreitur stækkar sem samsvarar núverandi reit samþykktrar bílageymslu og verður 9.5m x 22m að stærð. Hámarksgrunnflötur húss m. bílageymslu var 250m2, verður 185m2. Heildarstærð húss var 400m2, verður 350m2. Hámarksgrunnflötur hesthúss var 80m2, verður 68m2 og byggingarreitur er óbreyttur. Gólkóti hesthúss lækkar um 0,4m og nýting verður í risi. Nýtingahlutfall lóðar lækkar úr 0,44 niður í 0.38 s.br. teikningum dags. 23. september 2012 í mkv. 1:500 og 1:2000.

Skipulagsnefnd samþykkir með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna erindið fyrir lóðahöfum Frostaþings 1, 2, 2a, Dalaþings 2, 4, 5.