Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Atvinnuleitendur sem fullnýta bótarétt

Málsnúmer: 1210212

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2661. fundur

Áætlun kostnaðar vegna móttöku langtímaatvinnulausra, lagt fram á fundi félagsmálaráðs 6. nóvember og vísað til bæjarráðs, sbr. lið 12 í fundargerð.

Lagt fram. Bæjarráð ítrekar að ekki gangi að velta kostnaði yfir á sveitarfélögin af hálfu ríkisins án þess að tryggja þeim auknar tekjur til að mæta honum.

02

Félagsmálaráð - 1340. fundur

Lagt fram til upplýsingar og vísað til bæjarráðs. Ragnar Snorri Magnússon yfirmaður ráðgjafa og íbúðadeildar og Anna María Valdimarsdóttir sátu fundinn undir þessum lið.

03

Bæjarráð - 2658. fundur

Bókun í félagsmálaráði 16. október, ásamt greinargerð verkefnastjóra vegna atvinnuleitenda, sem fullnýta bótarétt um áramót og á næsta ári:$line$Félagsmálaráð ályktar um nauðsyn þess að sveitarfélögin taki höndum saman um að leita viðeigandi lausna til langframa. Ríkið og sveitarfélögin verða að leysa þennan alvarlega vanda í sameiningu. $line$

Bæjarráð bendir á að nú þegar hafa verið haldnir sameiginlegir fundir um málið með sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu og munu þau fylgja málinu eftir.

04

Félagsmálaráð - 1339. fundur

Félagsmálaráð ályktar um nauðsyn þess að sveitarfélögin taki höndum saman um leita viðeigandi lausna til langframa. Ríkið og sveitarfélögin verða leysa þennan alvarlega vanda í sameiningu.