Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Talning í íþróttamannvirkjum.

Málsnúmer: 1210221

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1075. fundur

Upplýsingar sem Gunnar Ingi Birgisson bæjarfulltrúi óskaði eftir í bæjarstjórn 09.10.12 og 26.03.13.

Lagt fram.

02

Bæjarstjórn - 1074. fundur

Á fundi bæjarstjórnar 13/11 sl. var óskað eftir talningu í öllum íþróttahúsum.

Gunnar Ingi Birgisson lagði fram eftirfarandi fyrirspurn:<EM>"Fyrirspurn til bæjarstjóra.</EM><EM>Undanfarið hefur bæjarstjóri ritað pistla í blöð og sagt hverfisskiptingu íþróttafélaganna í Kópavogi vera lokið. Spurt er:</EM><EM>1. Hvernig er þessari hverfaskiptingu háttað?</EM><EM>2. Hvaða félög eiga í hlut?</EM><EM>3. Hvar og hvenær hefur slíkt verið samþykkt;</EM><EM>a) Hvaða félög?</EM><EM>b) Hvenær í bæjarstjórn?</EM><EM>Skriflegt svar óskast.</EM><EM>Gunnar Ingi Birgisson"</EM>Þá lagði Gunnar Ingi Birgisson til að dagskrárliðnum verði frestað til næsta fundar, þar sem gögn bárust með of skömmum fyrirvara.Var það samþykkt með sex samhljóða atkvæðum en fimm bæjarfulltrúar sátu hjá.

03

Bæjarráð - 2659. fundur

Frá bæjarritara, dags. 23. október, svar við fyrirspurn um nýtingu á Kórnum sem óskað var eftir í bæjarstjórn 9. október sl.

Lagt fram.