Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Breiðahvarf 15. G.P.Luxury Apartment. Beiðni um umsögn

Málsnúmer: 1210226

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2663. fundur

Frá bæjarlögmanni, dags. 14. nóvember, lagt fram erindi sýslumannsins í Kópavogi, dags. 5. október, þar sem óskað er umsagnar um umsókn G.P Heildverslun ehf., kt. 501204-3230, um nýtt rekstrarleyfi til að mega reka heimagistingu í flokki 1, á staðnum G. P. Luxury Apartment að Breiðahvarfi 15, 203 Kópavogi, skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 23. gr. rgl. nr. 585/2007.

Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti enda er staðsetning í samræmi við gildandi skipulag og afgreiðslutími er í samræmi við ákvæði 4. mgr. 25. gr. reglugerðar nr. 1127/2007 um lögreglusamþykktir.