Þorrasalir 17 - breytt deiliskipulag
Málsnúmer: 1210263
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1068. fundur
Skipulagsnefnd samþykkir framlagða breytingartillögu dags. 4. desember ásamt umsögn og vísar henni til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísaði erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með tíu atkvæðum en einn bæjarfulltrúi sat hjá.
02
Bæjarráð - 2665. fundur
Skipulagsnefnd samþykkir framlagða breytingartillögu dags. 4. desember ásamt umsögn og vísar henni til bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar.
03
Skipulagsnefnd - 1219. fundur
Að lokinni kynningu er lagt fram að nýju erindi Mannverks ehf. dags. 12.10.2012 þar sem óskað er eftir breytingu á samþykktu deiliskipulagi. Í breytingunni felst að íbúðum er fjölgað úr 20 í 26, hámarksgrunnflötur stækkar úr 1400 m2 í 1511 m2, hámarks flatarmál húss stækkar úr 2700 m2 í liðlega 3700 m2. Bílastæði á lóð verða 29 og fjölgar því um 7 stæði. Húsið fer út fyrir byggingarreit á norðaustur horni þess og svalir fara lítillega út fyrir reitinn á vestur-, suður- og norðurhlið þess s.br. uppdráttum dags. í okt. 2012 í mkv. 1:200. Tillagan var kynnt í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir lóðarhöfum Þrymsala 1, 2, 3, Þorrasala 13, 15. Kynningartíma lauk 28. nóvember 2012. Athugasemdir og ábendingar bárust frá Herdísi Björk Brynjarsdóttir, Þrymsölum 2 dags. 13. nóvember 2012.$line$$line$Lögð fram árituð kynningargögn þar sem ekki eru gerðar athugasemdir eða ábendingar við framlagða tillögu: frá lóðarhafa Þorrasala 13-15 Leigugörðum ehf. dags. 12. nóvember 2012;frá Sæunni Ólafsdóttir og Benedikt Arnarsyni, Þrymsölum 3 dags. 7. nóvember 2012; frá Írisi R. Möller Arinbjarnardóttir, Arinbirni Snorrasyni og Friðný Möller, Þrymsölum 1 dags. 11. nóvember 2012.$line$$line$Lögð fram umsögn skipulags- og byggingardeildar við athugasemdir og ábendingar er bárust er ofangreind tillaga var kynnt. Er umsögni dags. 4. desember 2012.$line$$line$Enn fremur lögð fram ný tillaga að breyttu deiliskipulagi lóðarinnar að Þorrasölum 17. Í breytingartillögunni, sem er í mkv. 1:500 og 1:1000 og dags. 4. desember 2012 er komið til móts við athugasemd varðandi hæð fyrirhugaðrar byggingar í klasa 1 (syðsta hluta fyrirhugaðs fjölbýlishúss að Þorrasölum 17) Í breytingartillögunni er hámarkshæð fyrirhugaðs klasa 1 lækkuð um 0,8 m miðað við kynnta tillögu og ekki er gert ráð fyrir viðbótaraðkomu að lóðinni frá Þrymsölum.
Skipulagsnefnd samþykkir framlagða breytingartillögu dags. 4. desember 2012 ásamt umsögn. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
04
Skipulagsnefnd - 1217. fundur
Lagt fram erindi Mannverks ehf. dags. 12.10.2012 þar sem óskað er eftir breytingu á samþykktu deiliskipulagi. Í breytingunni felst að íbúðum er fjölgað úr 20 í 26, hámarksgrunnflötur stækkar úr 1400 m2 í 1511 m2, hámarks flatarmál húss hækkar úr 2700 í 3734. Bílastæði á lóð verða 29, fjölgun um 7 stæði. Húsið fer út fyrir byggingarreit á norðaustur horni þess og svalir fara lítillega út fyrir reitinn á vestur-, suður- og norðurhlið þess s.br. uppdráttum dags. í okt. 2012 í mkv. 1:200.
Með vísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samþykkir skipulagsnefnd að kynna tillöguna fyrir lóðarhöfum Þrymsala 1, 2, 3, Þorrasala 13, 15.