Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Rekstur sjúkraflutninga á höfuðborgarsvæðinu.

Málsnúmer: 1210301

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2718. fundur

Frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, afrit af bréfi til heilbrigðisráðherra, dags. 3. febrúar, varðandi verklok sjúkraflutninga á höfuðborgarsvæðinu.

Lagt fram. Ólafur Þór Gunnarsson lagði fram eftirfarandi bókun:<EM>"Ég lýsi ánægju minni með bréfið og sameiginlegan fund þingmanna og sveitarstjórna vegna málsins.</EM><EM>Ólafur Þór Gunnarsson"</EM> Ómar Stefánsson og Rannveig Ásgeirsdóttir tóku undir bókun Ólafs Þórs Gunnarssonar.

02

Bæjarráð - 2717. fundur

Frá bæjarstjóra, lagt fram erindi velferðarráðuneytisins frá 24. janúar, ásamt tillögu að samþykkt bæjarráðs vegna sjúkraflutninga á höfuðborgarsvæðinu.

Bæjarráð samþykkir tillögu að svari við erindi velferðarráðuneytisins.

03

Bæjarráð - 2716. fundur

Frá stjórn SHS, dags. 17. janúar, til heilbrigðisráðherra, þar sem farið er fram á að hafinn verði undirbúningur að verklokum þjónustu SHS vegna sjúkraflutninga á höfuðborgarsvæðinu.

Bæjarráð Kópavogs leggur ríka áherslu á að þeirri óvissu sem er uppi um sjúkraflutninga á höfuðborgarsvæðinu sé eytt. Bæjarráð telur jafnframt að samrekstur sjúkraflutninga og slökkviliðs sé skynsamlegasti kosturinn i stöðunni.

04

Bæjarráð - 2710. fundur

Frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, dags. 25. nóvember, varðandi framkvæmd verkloka vegna sjúkraflutninga og greiðsluáskorun.

Lagt fram.

05

Bæjarráð - 2705. fundur

Frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, erindi til heilbrigðisráðherra dags. 21. október, varðandi verklok þjónustu vegna sjúkraflutninga á höfuðborgarsvæðinu.

Lagt fram.

06

Bæjarráð - 2689. fundur

Frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, dags. 17. maí, þar sem staða mála við samningagerð um sjúkraflutninga er kynnt.

Bæjarráð tekur undir bókun stjórnar SHS um samninga um sjúkraflutninga.

07

Bæjarráð - 2662. fundur

Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri, og Birgir Finnsson, varaslökkviliðsstjóri, mættu til fundar til að gera grein fyrir skýrslu KPMG um úttekt á rekstri sjúkraflutninga á höfuðborgarsvæðinu.

Lagt fram.

08

Bæjarráð - 2659. fundur

Frá stjórn Slökkviliðs hbsv., dags. 22. október, óskað eftir að koma og kynna niðurstöður úttektar KPMG fyrir bæjarráði.

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarritara til afgreiðslu.

09

Bæjarráð - 2658. fundur

Frá stjórn Slökkviliðs hbsv., dags. 2. október, afrit af bréfi til velferðarráðherra ásamt skýrslu KPMG um kostnaðarskiptingu vegna reksturs sjúkraflutninga á höfuðborgarsvæðinu.

Lagt fram.