Samkomulag um innlausn, Skeljabrekka 4.
Málsnúmer: 1210302
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1085. fundur
Lagt fram undirritað samkomulag milli Kópavogsbæjar, annars vegar og AB Fasteigna ehf., hins vegar, um afsal á fasteigninni Skeljabrekku 4, sem bæjarstjóra var falið að ganga frá, sbr. lið 5 í fundargerð bæjarráðs frá 31. október sl.
Bæjarstjórn samþykkir samkomulagið með níu samhljóða atkvæðum. Einn bæjarfulltrúi sat hjá.
02
Bæjarráð - 2706. fundur
Mál sem frestað var í bæjarstjórn 24. september, drög að samkomulagi um innlausn Skeljabrekku 4.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga frá samkomulagi um innlausn á Skeljabrekku 4.Sviðsstjóri umhverfissviðs og bæjarlögmaður sátu fundinn undir þessum lið.
03
Bæjarstjórn - 1082. fundur
Sviðsstjóri umhverfissviðs lagði fram drög að samkomulagi um innlausn Skeljabrekku 4. Framkvæmdaráð samþykkir drög að samkomulagi um innlausn Skeljabrekku 4 og vísar til afgreiðslu bæjarráðs, sem vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, lagði til að afgreiðslu málsins væri frestað. Bæjarstjórn samþykkir tillögu Ármanns Kr. Ólafssonar með níu atkvæðum. Tveir bæjarfullrúar sátu hjá við afgreiðslu málsins.
04
Bæjarráð - 2700. fundur
Sviðsstjóri umhverfissviðs lagði fram drög að samkomulagi um innlausn Skeljabrekku 4. Framkvæmdaráð samþykkir drög að samkomulagi um innlausn Skeljabrekku 4 og vísar til afgreiðslu bæjarráðs.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
05
Framkvæmdaráð - 55. fundur
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs og fjármálastjóra
Sviðsstjóri umhverfissviðs lagði fram drög að samkomulagi um innlausn Skeljabrekku 4. Framkvæmdaráð samþykkir drög að samkomulagi um innlausn Skeljabrekku 4 og vísar til afgreiðslu bæjarráðs.
06
Bæjarráð - 2658. fundur
Frá skrifstofustjóra umhverfissviðs, dags. 17. október, tillaga um að Kópavogsbær leysi til sín lóðirnar Auðbrekku 13-15 og Skeljabrekku 4, ásamt tillögu að erindi til skiptastjóra þrotabús Bergeyjar fasteignafélags ehf.
Bæjarráð samþykkir tillöguna.Sviðsstjóri umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið.