Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Bæjarlind 6, SPOT. Beiðni um umsögn vegna umsóknar Kvennaskólans í Reykjavík um tækifærisleyfi

Málsnúmer: 1210312

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2658. fundur

Frá bæjarlögmanni, dags. 15. október, lagt fram bréf sýslumannsins í Kópavogi þar sem óskað er umsagnar um umsókn Keðjunnar, nemendafélags Kvennaskólans í Reykjavík, kt. 430993-2089, um tækifærisleyfi til að mega halda menntaskóladansleik miðvikudaginn 24. október, frá kl. 22:00 til 1:00 á SPOT, Bæjarlind 6, Kópavogi, skv. 17. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 27. gr. rgl. nr. 585/2007.

Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti og staðfestir að staðsetning er í samræmi við gildandi skipulag og afgreiðslutími er í samræmi við ákvæði 1. mgr. 25. gr. reglugerðar nr. 1127/2007 um lögreglusamþykktir.