Kópavogsbærinn og Hælið - ákvörðun um friðun. Tilkynning frá Húsafriðunarnefnd
Málsnúmer: 1210539
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2663. fundur
Frá Húsafriðunarnefnd, dags. 15. nóvember, tilkynnt að húsafriðun Hressingarhælisins í Kópavog nær til bæði ytra og innra byrðis hússins. Erindið var lagt fram og kynnt á fundi skipulagsnefndar 20. nóvember, sbr. lið 21 í fundargerð.
Lagt fram.
02
Skipulagsnefnd - 1218. fundur
Lagt fram erindi forstöðumanns Húsafriðunarnefndar dags. 25. október 2012 þar sem tilkynnt er að mennta- og menningarmálaráðherra hafi að fenginni tillögu Húsafriðunarnefndar friðað ytra byrði húsasamstæðu gamla Kópavogsbæjarins. Enn fremur lagt fram erindi frá Mennta- og menningarmálaráðuneyti dags. 22. október 2012 þar sem fram kemur að ráðherra hafi friðað innra og ytra byrði Hressingarhælisins (fastanúmer 2063364).
Lagt fram og kynnt.
03
Bæjarráð - 2660. fundur
Frá Húsafriðunarnefnd, dags. 25. október, tilkynning um að samþykkt hafi verið tillaga Kópavogsbæjar um friðun á gamla Kópavogsbænum.
Bæjarráð fagnar friðun gamla Kópavogsbæjarins. Lagt fram. Skipulagsstjóri sat fundinn undir þessum lið.