Lundur 5, byggingarleyfi
Málsnúmer: 1210564
Ferill máls
01
Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 67. fundur
Bygg ehf Borgartúni 31, Reykjavík sækir 11. nóvemrber 2012 um leyfi til að byggja fjölbýlishús að Lundi 5.$line$Lögð fram beiðni lóðarhafa dags. 10. október 2012 um undanþágu frá 6. til 16. hluta byggingarreglugerðar nr. 112/2012, með tilvísun í 1. tölulið í ákvæðum til bráðabirgða í reglugerðinni.$line$Teikn. Guðmundur Gunnlaugsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið 4. desember 2012.Samrýmist lögum nr. 160/2010.
02
Bæjarstjórn - 1067. fundur
Lagt fram erindi Guðmundar Gunnlaugssonar, arkitekts, f.h. lóðarhafa. Óskað er eftir að færa norðaustur vegg á efstu hæð húss númer 5, út í veggbrún í samræmi við hús nr. 4. Að auki er útskotum bætt við á efri hæðum hússins sbr. uppdrætti í mkv. 1:1000 og 1:2000 dags. 21. október 2012. Með tilvísan í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 telur skipulagsnefnd að umrædd tillaga hafi ekki grenndaráhrif og samþykkir erindið og vísar því til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar einróma.
03
Skipulagsnefnd - 1218. fundur
Lagt fram erindi Guðmunds Gunnlaugssonar, arkitekts, f.h. lóðarhafa. Óskað er eftir að færa norð-austur vegg á efstu hæð húss númer 5, út í veggbrún í samræmi við hús nr. 4. Að auki er útskotum bætt við á efri hæðum hússins s.br. uppdrætti í mkv. 1:1000 og 1:2000 dags. 21. október 2012.
Með tilvísan í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 telur skipulagsnefnd að umrædd tillaga hafi ekki grenndaráhrif og samþykkir því erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.