Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Innanlandsflug, óskað umsagnar um frumvarp til laga um miðstöð innanlandsflugs.

Málsnúmer: 1211126

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2665. fundur

Bókun umhverfis- og samgöngunefndar um umsögn, sem óskað var eftir í bæjarráði 15. nóvember sl. um frumvarp til laga um miðstöð innanlandsflugs. Nefndin tekur undir tillögur umsagnar sviðsstjóra umhverfissviðs og vísar þeim til afgreiðslu bæjarráðs.

Bæjarráð samþykkir tillögu sviðsstjóra að umsögn.

02

Umhverfis- og samgöngunefnd - 27. fundur

Bæjarráð óskar eftir umsögn

Á fundi bæjarráðs 15. nóvember 2012 var á dagskrá erindi frá nefndasviði alþingis, dags. 8. nóvember 2012. Óskað er eftir umsögn um frumvarp til laga um miðstöð innanlandsflugs. Bæjarráð vísaði erindinu til umsagnar umhverfis- og samgöngunefndar. Á fundinum eru lögð fram drög að umsögn umhverfis- og samgöngunefndar. "Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir umsögn um frumvarp til laga um miðstöð innanlandsflugs, dags. 3. desember 2012 og vísar til afgreiðslu bæjarráðs." Fulltrúi Næstbesta flokksins er alfarið á móti umsögninni.

03

Bæjarráð - 2662. fundur

Frá nefndasviði Alþingis, dags. 8. nóvember, óskað umsagnar um frumvarp til laga um miðstöð innanlandsflugs (hlutverk Reykjavíkurflugvallar, heildarlög), 120. mál.

Bæjarráð vísar erindinu til umhverfis- og samgöngunefndar til umsagnar.