Til baka í fundargerðir
Nýbýlavegur 8. Fyrirspurn varðandi afnot af lóð og bílaplani Dalbrekkumegin lóðar
Málsnúmer: 1211140
Ferill máls
01
Umhverfis- og samgöngunefnd - 27. fundur
Á fundi bæjarráðs 22. nóvember 2012 var á dagskrá erindi frá Alp hf., dags. 8. nóvember 2012. Erindið varðar fyrirspurn um hvort heimilað verði að koma fyrir bensíndælu við Nýbýlaveg 8 og hvort fyrirtækið geti vænst þess að fá aukin afnot af bílastæðum. Bæjarráð vísaði erindinu til umsagnar umhverfis- og samgöngunefndar. Umhverfis- og samgöngunefnd óskar eftir frekari gögnum frá Alp hf. um umfang fyrirhugaðrar starfsemi.
02
Bæjarráð - 2663. fundur
Frá Alp hf., dags. 8. nóvember fyrirspurn varðandi fyrirhugað athafnasvæði við Nýbýlaveg.
Bæjarráð vísar erindinu til umhverfis- og samgöngunefndar til umsagnar.