Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Skíðaspor í Fossvogsdal. Óskað eftir samstarfi við Kópavogsbæ

Málsnúmer: 1211207

Ferill máls

01

Umhverfis- og samgöngunefnd - 30. fundur

Lagt er fram erindi frá Skíðagöngufélaginu Ullur, dags. 11. nóvember 2012. Þar sem óskað er eftir að bæta aðstæður fyrir lengra og samfelldara skíðaspor í Fossvogsdal. $line$

Umhverfisfulltrúi kynnti framlagt erindi. Umhverfis- og samgöngunefnd vísar málinu til framkvæmdadeildar til úrvinnslu.

02

Íþróttaráð - 20. fundur

Erindi frá Skíðagöngufélaginu Ulli dags. 11. nóv. 2012, þar sem óskað er eftir leyfi til að leggja skíðaspor í Fossvogsdal í samvinnu og samráði við Kópavogsbæ. Bæjarráð vísaði erindinu til úrvinnslu sviðsstjóra menntasviðs.

Lagt fram til kynningar.Íþróttaráð fagnar erindi Skíðagöngufélagsins Ulls um aukna skíða- og íþróttamöguleika í Kópavogi.

03

Bæjarráð - 2662. fundur

Frá skíðagöngufélaginu Ulli, dags. 11. nóvember, hugmyndir um hugsanlega lagningu skíðaspors.

Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra menntasviðs til úrvinnslu.