Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Þinghólsbraut 17, byggingarleyfi.

Málsnúmer: 1212038

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1073. fundur

Bæjarráð samþykkti afgreiðslu skipulagsnefndar og vísaði málinu til bæjarstjórnar til staðfestingar.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs og samþykkir tillöguna með 6 atkvæðum. Fjórir bæjarfulltrúar sitja hjá. Einn bæjarfulltrúi var fjarverandi.

02

Bæjarráð - 2677. fundur

Skipulagsnefnd samþykkir framlagða breytingartillögu ásamt umsögn skipulags- og byggingardeildar. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar og vísar málinu til bæjarstjórnar til staðfestingar.

03

Skipulagsnefnd - 1223. fundur

Lögð fram að nýju tillaga Árna Kjartanssonar, atkitekts Gláma-Kím, þar sem óskað er eftir heimild til að byggja við húsið um 40 m að grunnfleti á tveimur hæðum og um 70 m2 að samanlögðum gólffleti. Nýtingarhlutfall lóðar hækkar úr 0,2 í 0,29. Uppdráttur í mkv. 1:500 og 1:100 dags. 23.11.2012. Kynningu lauk 25.1.2013. Athugasemd barst frá Magnúsi Skúlasyni, Þinghólsbraut 20, dags. og mótt. 7.1.2013. Einnig lagt fram bréf frá Rósu Sveinsdóttur og Jóhannesi Tómasson, Mánabraut 16 dags. 15.1.2013 þar sem ekki eru gerðar athugasemdir við fyrirhugaðar breytingar. Málinu var frestað og skipulags- og byggingardeild falið að taka saman umögn um framkomna athugasemd.$line$$line$Lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 21.2.2013.

Skipulagsnefnd samþykkir framlagða breytingartillögu ásamt umsögn skipulags- og byggingardeildar. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

04

Skipulagsnefnd - 1222. fundur

Að lokinni kynningu er lagt fram að nýju erindi Árna Kjartanssonar, atkitekts Gláma-Kím þar sem óskað er eftir heimild til að byggja við húsið um 40 m að grunnfelti á tveimur hæðum og um 70 m2 að samanlögðum gólffleti. Nýtingarhlutfall lóðar hækkar úr 0,2 í 0,29. Uppdrætti í mkv. 1:500 og 1:100 dags. 23. nóvember 2012. Kynningu lauk 25. janúar 2013. Athugasemd barst frá Magnúsi Skúlasyni, Þinghólsbraut 20, dags. og mótt. 7. janúar 2013. Einnig lagt fram samþykki Rósu Sveinsdóttur og Jóhannesar Tómassonar, Mánabraut 16, sbr. tölvupósti dags. 15. janúar 2013.

Frestað. Skipulagsnefnd felur skipulags- og byggingardeild og taka saman umögn um framkomna athugasemd.

05

Skipulagsnefnd - 1220. fundur

Frá byggingarfulltrúa:$line$Lagt fram erindi Árna Kjartanssonar, atkitekts Gláma-Kím þar sem óskað er eftir heimild til að byggja við húsið um 40 m að grunnfelti á tveimur hæðum og um 70 m2 að samanlögðum gólffleti. Nýtingarhlutfall lóðar hækkar úr 0,2 í 0,29. Uppdrætti í mkv. 1:500 og 1:100 dags. 23. nóvember 2012.

Skipulagsnefnd samþykkir með tilvísan í 44. gr. skipulagslagan nr. 123/2010 að kynna tillöguna fyrir lóðarhöfum Þinghólsbrautar 15, 18, 19, 20, 22 Sunnubraut 16, 18 og 22.

06

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 67. fundur

Óskar Sturluson, Þinghólsbraut 17, Kópavogi sækir 27. nóvember 2012 um leyfi til að byggja viðbyggingu að Þinghólsbraut 17.$line$Teikn. Árni Kristjánsson.$line$$line$

Vísað til skipulagsnefndar með vísan í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.