Sveitarfélagamörk Kópavogs og Garðabæjar við Kjóavelli.
Málsnúmer: 1212099
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1069. fundur
Mál sem samþykkt var í framkvæmdaráði 12/12 og í bæjarráði 13/12, til staðfestingar bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir einróma samkomulag um staðarmörk Kópavogs og Garðabæjar við Kjóavelli.
02
Bæjarráð - 2666. fundur
Frá skrifstofustjóra umhverfissviðs.$line$Lögð fram drög að samkomulagi um ný staðarmörk Kópavogsbæjar og Garðabæjar á Kjóavöllum, sbr. sameiginlegt deiliskipulag Kópavogs og Garðabæjar dags. 29. september 2009 og samning Kópavogsbæjar, Garðabæjar og hestamannafélaganna Gusts og Andvara dags. 8. júní 2012. $line$Framkvæmdaráð samþykkti drögin að samkomulaginu og $line$vísaði þeim til bæjarráðs til afgreiðslu.$line$
Bæjarráð samþykkir drög að samkomulagi.
03
Framkvæmdaráð - 42. fundur
Frá skrifstofustjóra umhverfissviðs.
Lögð fram drög að samkomulagi um ný staðarmörk Kópavogsbæjar og Garðabæjar á Kjóavöllum, sbr. sameiginlegt deiliskipulag Kópavogs og Garðabæjar dags. 29. september 2009 og samning Kópavogsbæjar, Garðabæjar og hestamannafélaganna Gusts og Andvara dags. 8. júní 2012. Samþykkt og vísað til bæjarráðs til afgreiðslu.