Kópavogsgerði 5-7, afsal lóðarúthlutunar.
Málsnúmer: 1212149
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2666. fundur
Framkvæmdaráð leggur til við bæjarráð að S.Þ.verktökum verði heimilað að skila lóðinni Kópavogsgerði 5 - 7. Fyrir liggur umsókn frá Dverghömrum ehf. um þessa lóð. Framkvæmdaráð leggur til við bæjarráð og bæjarstjórn að þeim verði úthlutað lóðinni Kópavogsgerði 5-7. Þessi afgreiðsla er sambærileg við úthlutun lóðarinnar Þorrasalir 13-15.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu framkvæmdaráðs með þremur atkvæðum gegn einu. Einn fulltrúi sat hjá.
02
Framkvæmdaráð - 42. fundur
Framkvæmdaráð leggur til við bæjarráð að S.Þ.Verktökum verði heimilað að skila lóðinni Kópavogsgerði 5 - 7. Fyrir liggur umsókn frá Dverghömrum ehf. um þessa lóð. Framkvæmdaráð leggur til við bæjarráð og bæjarstjórn að þeim verði úthlutað lóðinni Kópavogsgerði 5-7. Þessi afgreiðsla er sambærileg við úthlutun lóðarinnar Þorrasalir 13-15. Guðríður Arnardóttir bókar: Er á móti þessu og finnst afar óeðlilegt að lóðinni sé úthlutað á sama tíma og henni er skilað. Hjálmar Hjálmarsson bókar: Ég er sammála bókun Guðríðar Arnardóttur.