Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Hagasmári 1, Smáralind, auglýsingarskilti

Málsnúmer: 1212211

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1095. fundur

Lögð fram að nýju fyrirspurn G. Odds Víðissonar, arkitekts fh. Eignarhaldsfélags Smáralindar ehf. dags. 13.12.2012 þar sem óskað er álits skipulagsnefndar á áformum eiganda um að staðsetja flettiskilti á lóð Smáralindar.

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar með 6 atkv. gegn einu atkv. Fjórir sitja hjá.

02

Skipulagsnefnd - 1238. fundur

Lögð fram að nýju fyrirspurn G. Odds Víðissonar, arkitekts fh. Eignarhaldsfélags Smáralindar ehf. dags. 13.12.2012 þar sem óskað er álits skipulagsnefndar á áformum eiganda um að staðsetja flettiskilti á lóð Smáralindar. Meðfylgjandi uppdráttur og ljósmyndir. Á fundi skipulagsnefndar 16.4.2013 var erindinu frestað þar til heildarskipulag svæðisins liggur fyrir.

Samþykkt. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

03

Skipulagsnefnd - 1224. fundur

Lögð fram að nýju fyrirspurn G. Odds Víðissonar, arkitekts fh. Eignarhaldsfélags Smáralindar ehf. dags. 13.12.2012 þar sem óskað er álits skipulagsnefndar á áformum eiganda um að staðsetja flettiskilti á lóð Smáralindar. Meðfylgjandi uppdráttur og ljósmyndir. Á fundi skipulagsnefndar 18.12.2013 var erindinu frestað og óskað eftir umsögn Vegagerðarinnar.$line$$line$Lagt fram bréf frá Vegagerðinni dags. 12.2.2013 þar sem fram kemur að Vegagerðin geti ekki leyft umrætt skilti þar sem það sé staðsett innan veghelgunarsvæðis Reykjanesbrautar, sem er 60m breit eða 30m til hvorrar handar frá miðlínu vegarins. Vegargerðin gerir ekki athugasemd við mannvirki utan 30m fjarlægðar frá vegmiðju á þessu svæði. Þá lögð fram lagfærð teikning dags. 15.4.2013 þar sem skiltið er fært í 30m fjarlægð frá miðlínu Reykjanesbrautar.

Skipulagsnefnd frestar erindinu þar til heildarskipulag svæðisins liggur fyrir.

04

Skipulagsnefnd - 1220. fundur

Lagt fram fyrirspurn G. Odds Víðissonar, arkitekts fh. Eignarhaldsfélags Smáralindar ehf. dags. 13. desember 2012 þar óskað er álits skipulagsnefndar á áformum eiganda um að staðsetja flettiskilti á lóð Smáralindar. Meðfylgjandi uppdráttur og ljósmyndir.

Frestað. Skipulagsnefnd óskar eftir umsögn Vegagerðarinnar.Bókun: Guðmundur Örn Jónsson ítrekar að lokið verði við almenna stefnumótun um auglýsingarskilti í bænum.