Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Rammasamningur um örútboð

Málsnúmer: 1301083

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2669. fundur

Samþykkt er að Kópavogsbær verði ekki aðili að rammasamningi Ríkiskaupa um örútboð á þjónustu iðnaðarmanna en núverandi samningur rennur út 31. mars 2013. Minni útboð verða boðin út á vegum umhverfissviðs eins og verið hefur. Samþykkt með tveimur atkvæðum.

Bæjarráð staðfestir afgreiðslu framkvæmdaráðs með þremur atkvæðum gegn einu. Einn bæjarfulltrúi sat hjá við afgreiðslu málsins.Guðríður Arnardóttir vísar til bókunar sinnar á fundi framkvæmdaráðs um málið.

02

Framkvæmdaráð - 43. fundur

Samþykkt er að Kópavogsbær verði ekki aðili að rammasamningi Ríkiskaupa um örútboð á þjónustu iðnaðarmanna en núverandi samningur rennur út 31. mars 2013. Minni útboð verða boðin út á vegum umhverfissviðs eins og verið hefur. Samþykkt með tveimur atkvæðum. Guðríður Arnardóttir greiðir atkvæði gegn. Guðríður Arnardóttir bókar: <SPAN style="COLOR: black"><FONT size=3><FONT face="Times New Roman">Viðskipti Kópavogsbæjar við iðnaðarmenn hafa löngum verið gagnrýnd sökum þess að sömu aðilar hafa þar oftlega verið valdir til verka.<SPAN style="mso-spacerun: yes"> </SPAN>Með aðild að samningi Ríkiskaupa hefði mátt standa að þessum málum á gegnsæjan hátt þar sem val á þjónustuaðilum væri hafið yfir allan vafa.</FONT></FONT></SPAN><SPAN style="COLOR: black">Ómar Stefánsson og Gunnar Birgisson bóka: Í gegnum tíðina hefur verið valið til verka í gegnum útboð. Ferlið hefur verið opið og gegnsætt og verður það áfram. </SPAN><SPAN style="COLOR: black"><FONT size=3><FONT face="Times New Roman"><?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" /><o:p></o:p></FONT></FONT></SPAN>