Til baka í fundargerðir
Seljahverfi-stígar
Málsnúmer: 1301166
Ferill máls
01
Umhverfis- og samgöngunefnd - 30. fundur
Lögð er fram tillaga að breyttu deiliskipulagi í Reykjavík. Deiliskipulagið varðar breytingu á stígakerfi í Seljahverfi og tengingu stíganna við stofnstíg Kópavogsbæjar.
Skipulagsstjóri gerði grein fyrir málinu. Umhverfis- og samgöngunefnd gerir ekki athugasemdir við tillöguna.
02
Skipulagsnefnd - 1221. fundur
Lögð fram tillaga Reykjavíkurborgar dags. 26. nóvember 2012 að stígtengingum á nokkrum stöðum í Seljahverfi við nýjan göngustíg sem liggur á sveitarfélagsmörkum Reykjavíkur og Kópavogs. Gert er ráð fyrir 2-3 metra breiðum stígum að jafnaði. Almennt er gert ráð fyrir að þeir verði lýstir upp sbr. uppdrætti dags. 15.11.2012 í mkv. 1:4000.
Skipulagsnefnd tekur undir hugmyndir Reykjavíkurborgar um sameiningu göngustíga á mörkum sveitarfélaganna.