Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Óskað eftir leyfi frá störfum bæjarfulltrúa frá 17.1.- 10.4. 2013

Málsnúmer: 1301255

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1070. fundur

Ólafur Þór Gunnarsson óskaði eftir að vera í leyfi frá og með 17. janúar til og með 10. apríl 2013. Bæjarráð vísaði erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

Bæjarstjórn samþykkir að veita Ólafi Þór Gunnarssyni leyfi frá 17. janúar til og með 10. apríl. Varamaður hans Arnþór Sigurðsson mun gegna störfum bæjarfulltrúa Vinstri grænna á því tímabili.

02

Bæjarráð - 2670. fundur

Frá Ólafi Þór Gunnarssyni, dags. 17. janúar, óskað eftir að vera í leyfi frá og með 17. janúar til og með 10. apríl 2013.

Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar. Guðríður Arnardóttir lagði fram eftirfarandi bókun:<EM>"Ég óska Ólafi Þór Gunnarssyni velfarnaðar á vettvangi Alþingis.</EM><EM>Guðríður Arnardóttir"</EM>