Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Austurkór 43-47. Breytt deiliskipulag.

Málsnúmer: 1301310

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1073. fundur

Bæjarráð samþykkti afgreiðslu skipulagsnefndar og vísaði málinu til bæjarstjórnar til staðfestingar.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs og samþykkir tillöguna með 7 atkvæðum. Fjórir bæjarfulltrúar sitja hjá.

02

Bæjarráð - 2677. fundur

Skipulagsnefnd samþykkir framlagða breytingartillögu. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar og vísar málinu til bæjarstjórnar til staðfestingar.

03

Skipulagsnefnd - 1223. fundur

Lagt fram að nýju erindi Kjartans Rafnssonar f.h. lóðarhafa um breytt deiliskipulag fyrir lóðir nr. 43-47 við Austurkór. Í breytingunni felst að reist verða þrjú hús í stað fjögurra áður. Þá breytist hámarksgrunnflötur í 160m2 frá 124m2/106m2 og verða öll hús jafnstór. Hús eru fyrirhuguð á einni hæð og hámarkshæð 4,8m. Gert er ráð fyrir innbyggðri bílgeymslu í hverju húsi. Lóðamörk breytast en fjöldi bílastæði verður sá sami eða tvö bílastæði á lóð sbr. uppdráttum dags. 7.1.2013. Á fundi skipulagsnefndar 5.2.2013 var samþykkt með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að kynna tillöguna fyrir lóðarhöfum Austurkórs 35-41, 49-53; Arakórs 1 og 2; Almannakórs 1. $line$Þá lögð fram kynningargögn með áritun fyrrgreindra lóðarhafa sem gera ekki athugasemd við fyrirhugaða breytingu dags. 4.3.2013.

Skipulagsnefnd samþykkir framlagða breytingartillögu. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

04

Skipulagsnefnd - 1222. fundur

Lagt fram erindi Kjartans Rafnssonar f.h. lóðarhafa um breytt deiliskipulag fyrir lóðir nr. 43-47 við Austurkór. Í breytingunni felst að reist verða þrjú hús í stað fjögurra áður. Þá breytist hámarksgrunnflötur í 160m2 frá 124m2/106m2 og verða öll hús jafnstór. Hús eru fyrirhuguð á einni hæð og hámarkshæð 4,8m. Gert er ráð fyrir innbyggðri bílgeymslu í hverju húsi. Lóðamörk breytast en fjöldi bílastæði verður sá sami eða tvö bílastæði á lóð sbr. uppdráttum dags. 7.1.2013.

Skipulagsnefnd samþykkir með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að kynna tillöguna fyrir lóðarhöfum Austurkórs 41-35, 49-53; Arakórs 1 og 2; Almannakórs 1.