Fundargerðir nefnda. Afgreiðsla bæjarstjórnar 22. janúar 2013
Málsnúmer: 1301474
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1070. fundur
Lagðar fram fundargerðir byggingarfulltrúa frá 8. janúar, bæjarráðs frá 10. og 17. janúar, félagsmálaráðs frá 15. janúar, forsætisnefndar frá 17. janúar, framkvæmdaráðs frá 9. janúar, íþróttaráðs frá 8. janúar, leikskólanefndar frá 15. janúar, samvinnunefndar um svæðisskipulag frá 21. desember, skipulagsnefndar frá 15. janúar, skólanefndar frá 14. janúar, stjórnar Sorpu bs. frá 7. og 14. janúar og umvherfis- og samgöngunefndar frá 14. janúar.
Til máls tóku Gunnar Ingi Birgisson um lið 15 í fundargerð bæjarráðs frá 10. janúar, Hjálmar Hjálmarsson um stjórn fundarins og að fundargerð lista- og menningarráðs frá 17. janúar verði tekin á dagskrá með afbrigðum, Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri um stjórn fundarins, Hjálmar Hjálmarsson um stjórn fundarins, Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri um stjórn fundarins. Forseti bar undir fundinn tillögu Hjálmars Hjálmarssonar um að taka á dagskrá fundargerð lista- og menningarráðs frá 17. janúar og var það samþykkt með fimm atkvæðum gegn þremur. Þar sem samþykki 2/3 þarf til að taka mál á dagskrá með afbrigðum skv. samþykktum um stjórn bæjarins telst tillögunni hafnað. Þá tók til máls Guðríður Arnardóttir um lið 15 í fundargerð bæjarráðs frá 10. janúar og liði 13, 19 og 20 í fundargerð bæjarráðs frá 17. janúar. Þá veitti Gunnar Ingi Birgisson andsvar við ræðu Guðríðar Arnardóttur. Þá svaraði Guðríður Arnardóttir andsvari Gunnars Inga Birgissonar. Þá veitti Rannveig Ásgeirsdóttir andsvar við ræðu Guðríðar Arnardóttur. Þá tók til máls Hafsteinn Karlsson um lið 4 í fundargerð umhverfis- og samgöngunefndar frá 14. janúar, Ómar Stefánsson um lið 19 í fundargerð bæjarráðs frá 10. janúar, um lið 12 í fundargerð framkvæmdaráðs frá 9. janúar, um lið 1 í fundargerð íþróttaráðs frá 8. janúar og um lið 1 í fundargerð stjórnar Sorpu frá 7. janúar, Margrét Björnsdóttir um liði 4 og 5 í fundargerð umhverfis- og samgöngunefndar frá 14. janúar, Hjálmar Hjálmarsson um stjórn fundarins, Arnþór Sigurðsson um liði 4 og 5 í fundargerð umhverfis- og samgöngunefndar frá 14. janúar, um lið 9 í fundargerð bæjarráðs frá 10. janúar og um lið 15 í fundargerð bæjarráðs frá 17. janúar, Hjálmar Hjálmarsson um lið 15 í fundargerð bæjarráðs frá 17. janúar, um lið 28 í fundargerð bæjarráðs frá 17. janúar og um lið 13 í fundargerð bæjarráðs frá 17. janúar. Þá veitti Gunnar Ingi Birgisson andsvar við ræðu Hjálmars Hjálmarssonar. Þá svaraði Hjálmar Hjálmarsson andsvari Gunnars Inga Birgissonar. Því næst veitti Margrét Björnsdóttir andsvar við ræðu Hjálmars Hjálmarssonar. Hjálmar Hjálmarsson svaraði andsvari Margrétar Björnsdóttur. Þá tóku til máls Pétur Ólafsson um lið 25 í fundargerð bæjarráðs frá 17. janúar, um lið 15 í fundargerð bæjarráðs frá 10. janúar og um lið 9 í fundargerð bæjarráðs frá 10. janúar, Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri um lið 9 í fundargerð bæjarráðs frá 10. janúar, um liði 13 og 15 í fundargerð bæjarráðs 17. janúar, um lið 4 í fundargerð umhverfis- og samgöngunefndar frá 14. janúar og um lið 15 í fundargerð bæjarráðs 10. janúar og Hjálmar Hjálmarsson um liði 19 og 20 í fundargerð bæjarráðs 10. janúar, lið 13 í fundargerð bæjarráðs 17. janúar og um lið 1 í fundargerð íþróttaráðs 8. janúar. Þá veitti Arnþór Sigurðsson andsvar við ræðu Hjálmars Hjálmarssonar.