Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Bæjarlind 6, SPOT - Rosaam ehf. Beiðni um umsögn vegna umsóknar um tækifærisleyfi v. beinnar útsendingar á úrslitaleik NFL

Málsnúmer: 1301588

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2672. fundur

Frá bæjarlögmanni, umsögn dags. 29. janúar, um erindi sýslumannsins í Kópavogi, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Rosaam ehf., kt. 631008-0110, um tækifærisleyfi til að mega hafa opið lengur eða til kl. 3:00, í tilefni af úrslitaleik NFL (Superball), sunnudaginn 3. febrúar 2013, á SPOT, að Bæjarlind 6, Kópavogi, skv. 17. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 27. gr. rgl. nr. 585/2007. Staðsetning er í samræmi við gildandi skipulag. Tilgreindur afgreiðslutími umsækjanda er til kl. 3:00 aðfararnótt mánudags en ákvæði 2. mgr. 25. gr. reglugerðar nr. 1127/2007 um lögreglusamþykktir gerir einungis ráð fyrir opnunartíma til kl. 23:30. Bæjarstjórn er þó heimilt að ákveða lengri opnunartíma en gert er ráð fyrir í lögreglusamþykkt.

Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti með fjórum atkvæðum og staðfestir að staðsetning er í samræmi við gildandi skipulag. Einn fulltrúi sat hjá.