Álfabrekka gatnagerð endurnýjun lagna, útboð
Málsnúmer: 1301618
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2685. fundur
Á fundi framkvæmdaráðs 10. apríl sl. var kynnt niðurstaða útboðs gatnagerðar í Álfabrekku. Lægstbjóðandi hefur óskað eftir að draga tilboð sitt til baka og hefur verið fallist á það. Framkvæmdaráð samþykkir að leitað verði samninga við Óskatak ehf. um verkið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs, sbr. lið 3 í fundargerð.
Bæjarráð samþykkir að leitað verði samninga við Óskatak ehf.
02
Framkvæmdaráð - 49. fundur
Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar
Á fundi framkvæmdaráðs 10. apríl sl. var kynnt niðurstaða útboðs gatnagerðar í Álfabrekku. Lægstbjóðandi hefur óskað eftir að draga tilboð sitt til baka og hefur verið fallist á það. Framkvæmdaráð samþykkir að leitað verði samninga við Óskatak ehf. um verkið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs.
03
Bæjarráð - 2681. fundur
Tilboð opnuð í verkið "Álfabrekka, endurgerð á eldri götum". Framkvæmdaráð veitir heimild til að ganga til samning vil lægstbjóðanda.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu framkvæmdaráðs.
04
Framkvæmdaráð - 48. fundur
Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar
Þriðjudaginn 9. apríl 2013 kl. 14.00 voru opnuð tilboð í verkið "Álfabrekka, endurgerð á eldri götum" samkv. útboðsgögnum gerðum af verkfræðistofunni Byggt ehf. og verkfræðistofunni Verkis ehf. Útboð var opið og bárust sex tilboð. Framkvæmdaráð veitir heimild til að ganga til samninga við lægstbjóðanda.
05
Framkvæmdaráð - 44. fundur
Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar
Framkvæmdaráð veitir heimild til að bjóða út í opnu útboði gatnagerð og endurnýjun lagna í Áflabrekku milli Álfhólsvegar og Nýbýlavegar.