Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Fífan gervigras endurnýjað, útboð.

Málsnúmer: 1301621

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2685. fundur

Þann 9. apríl sl. voru opnuð tilboð í verkið "Knattspyrnuhúsið Fífan, nýtt gervigrasyfirborð - gerviefni á hlaupabrautir." Lagt er fram mat á tilboðum. Framkvæmdaráð samþykkir að leitað verði samninga við Metatron ehf. um tilboð nr. 5. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs, sbr. lið 5 í fundargerð.

Bæjarráð samþykkir að leitað verði samninga við Metatron ehf. um tilboð nr. 5.

02

Framkvæmdaráð - 49. fundur

Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar

Þann 9. apríl sl. voru opnuð tilboð í verkið "Knattspyrnuhúsið Fífan, nýtt gervigrasyfirborð - gerviefni á hlaupabrautir." Lagt er fram mat á tilboðum. Framkvæmdaráð samþykkir að leitað verði samninga við Metatron ehf. um tilboð nr. 5. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs.

03

Framkvæmdaráð - 48. fundur

Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar

Þriðjudaginn 9. apríl 2013 kl. 11.00 voru opnuð tilboð í verkið "Knattspyrnuhúsið Fífan, nýtt gefigrasyfirborð, gerviefni á hlaupabrautir". Átta tilboð bárust og þrjú frávikstilboð. Verið er að fara yfir tilboð.

04

Framkvæmdaráð - 44. fundur

Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar

Framkvæmdaráð veitir heimild til að bjóða út í opnu útboði endurnýjun á gerfigrasi í Fífunni. Núverandi gerfigras var tekið í notkun um vorið 2002 og er nú orðið verulega skemmt á samskeitum og slitið.