Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Vettvangsferðir Íþróttaráðs 2013 - Gerpla

Málsnúmer: 1301648

Ferill máls

01

Íþróttaráð - 22. fundur

Íþróttaráð hóf heimsóknir til íþróttafélaganna í íþróttamiðstöðinni Versölum, í félagsaðstöðu Gerplu.$line$Fulltrúar Gerplu á fundinum voru Jón Finnbogason formaður, Auður Inga Þorsteinsdóttir,Arnar Ólafsson, Ragnheiður M Ólafsdóttir, Harpa Þorláksdóttir, Jane María Sigurðardóttir, Margrét Auðunsdóttir og Linda Laufdal Traustadóttir$line$

Una María formaður íþróttaráðs bauð fulltrúa Gerplu velkomin á fund ráðsins. Formaður Gerplu þakkaði fyrir það tækifæri að koma til fundar við íþróttaráð og lagði fram minnisblað frá Gerplu dags. 30. jan. 2013 til umræðu á fundinum. Helstu atriði minnisblaðsins eru; Ásókn í þjónustu félagsins, húsnæðisaðstaða félagsins, vinnuaðstaða starfsfólks, viðhaldsþörf mannvirkis, aðstaða fyrir foreldra, hættuleg áhöld og að Evrópumót í hópfimleikum fer fram á Íslandi 2014.Framkvæmdastjóri Gerplu greindi síðan í stuttu máli frá því hvernig starfsemi félagsins færi fram í dag og hvað væri helst til úrbóta gagnvart þeim atriðum sem listuð væru upp á minnisblaðinu. Góðar umræður urðu um málefni félagsins þar sem fulltrúar íþróttaráðs fengu svör við nokkrum beinum spurningar sem meðal annars véku að biðlistum, æfingagjöldum og forgangi barna úr Kópavogi til æfinga í Gerplu. Að lokum var fulltrúum íþróttaráðs boðið í vettvangsferð um aðstöðu félagsins í Versölum.