Sjálfsafgreiðslubensínstöð, Arnarnesvegur/Fífuhvammsvegur.
Málsnúmer: 1301656
Ferill máls
01
Skipulagsnefnd - 1222. fundur
Lagt fram bréf frá Garðabæ dags. 4.2.2013 varðandi erindi Akralands ehf. f.h. lóðarahafa, í samstarfi við Atlantsolíu ehf. Sótt er um að reisa sjálfsafgreiðslubensínstöð á mótum Arnarnesvegar og Fífuhvammsvegar, 1030m2 að grunnfleti. Enn fremur lögð fram fundargerð umhverfis- og samgöngunefndar Kópavogs frá 4. febrúar 2013.
<DIV align=left>Skipulagsnefnd tekur undir öryggis- og skipulagssjónarmið í umsögn umhverfis- og samgöngunefndar frá 4. febrúar 2013 varðandi staðsetningu sjálfsafgreiðslubensínstöðvar á mótum Arnarnesvegar og Fífuhvammsvegar en þar er lagst gegn tillögunni.<DIV align=left><DIV align=left>Kristinn Dagur Gissurarson vék af fundi undir þessum lið.
02
Umhverfis- og samgöngunefnd - 30. fundur
Lagt er fram erindi frá Garðabæ dags. 4.2.2013 þar sem óskað er eftir umsögn umhverfis- og samgöngunefndar á sjálfsafgreiðslubensínstöð á mótum Arnarnesvegar og Fífuhvammsvegar.
Skipulagsstjóri gerir grein fyrir tillögunni. Umhverfis- og samgöngunefnd hafnar tillögunni. Það er mat umhverfis- og samgöngunefndar að mjög óráðlagt sé að taka ákvarðanir um breytingu á skipulagi á umræddum stað í aðal gatnakerfi höfðuborgarsvæðisins, þar sem stór hluti svæðisins hefur ekki verið deiliskipulagður. Auk þess er það skoðun umhverfis- og samgöngunefndar að tengja bensínstöð sbr. framlagða tillögu við stofnbraut og tengibraut muni dragi úr umferðaröryggi í aðalgatnakerfi umrædds svæðis. Umhverfis- og samgöngunefnd bendir einnig á að ekki sé skortur á bensínstöðum á svæðinu.