Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Álmakór 1, 3 og 5. Breytt deiliskipulag.

Málsnúmer: 1301684

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1076. fundur

Skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.$line$

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar og samþykkir tillöguna með tíu samhljóða atkvæðum. Einn bæjarfulltrúi sat hjá.

02

Bæjarráð - 2682. fundur

Skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

03

Skipulagsnefnd - 1224. fundur

Að lokinni kynningu er lagt fram að nýju erindi Ríkharðs Oddssonar dags. 2. febrúar 2013 f.h. lóðarhafa þar sem óskað er eftir að breyta deiliskipulagi við Álmakór 1, 3 og 5. Í breytingunni felst að á lóðunum verði byggð einbýlishús á einni hæð í stað einbýlishúsa á tveimur hæðum. Hámarksgrunnflötur stækkar úr 250m2 í 270m2 sbr. uppdrætti dags. 4.2.2013. Á fundi skipulagsnefndar 5. febrúar 2013 var samþykkt með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að kynna tillöguna fyrir lóðarhöfum Álmakórs 2, 4, 6, 7, 8, 9, 10 og 11. Kynningu lauk 14. mars 2013. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust.

Skipulagsnefnd samþykkir framlagða breytingartillögu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

04

Skipulagsnefnd - 1222. fundur

Lagt fram erindi Ríkharðs Oddssonar dags. 2. febrúar 2013 f.h. lóðarhafa þar sem óskað er að breyta deiliskipulagi við Álmakór 1, 3 og 5. Í breytingunni felst að á lóðunum verði byggt einbýlishús á einni hæð í stað einbýlishúsa á tveimur hæðum. Hámarksgrunnflötur stækkar úr 250m2 í 270m2 sbr. uppdráttur dags. 4.2.2013.

Skipulagsnefnd samþykkir með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að kynna tillöguna fyrir lóðarhöfum Álmakórs 2, 4, 6, 7, 8, 9, 10 og 11.