Til baka í fundargerðir
28. Landsmót UMFÍ 2017 og 29. Landsmót UMFÍ 2021. Viðhorf íþróttafélaganna.
Málsnúmer: 1302222
Ferill máls
01
Íþróttaráð - 25. fundur
Íþróttadeildin sendi út fyrirspurn til íþróttafélaganna í bænum um afstöðu til að sækja um eitthvert umræddra Landsmóta á vegum UMFÍ á næstu 8 árum.
Umsóknarfrestur til að sækja um þessi mót er til 30. sept. nk. þannig að íþróttaráð frestar afgreiðslu málsins til haustsins.
02
Íþróttaráð - 23. fundur
Starfsmönnum íþróttadeildar falið að kanna viðhorf íþrótta- og ungmennafélaganna í bænum.
03
Bæjarráð - 2674. fundur
Lagt fram bréf UMFI, dags. 7. febrúar, þar sem auglýst er eftir umsóknum frá sambandsaðilum UMFÍ um að taka að sér undirbúning og framkvæmd 28. landsmót UMFÍ 2017 og 29. landsmót UMFÍ 2021.Umsóknum skal skila fyrir 30. apríl nk.
Bæjarráð vísar erindinu til íþróttaráðs til afgreiðslu.