Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Kópavogsbrún 2-4, umsókn um lóð

Málsnúmer: 1302228

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1087. fundur

Lagt fram erindi sviðsstjóra umhverfissviðs dags. 12. nóvember 2013, þar sem skýrð er framvinda vegna úthlutana Kópavogsbrún 2 - 4. Framkvæmdaráð samþykkti að heimila framsal lóðarréttinda Kópavogsbrún 4 frá Sætrar ehf. til Tónahvarf ehf. Fyrir fund bæjarstjórnar liggi fyrir framkvæmdaáætlun Tónahvarfs ehf. vegna uppbyggingar Kópavogsbrún 2-4. Jafnframt samþykkir framkvæmdaráð að Sætrar ehf. hafi vilyrði til úthlutunar sambærilegs byggingarmagns lóðar og úthlutun Kópavogsbrún 4 fól í sér, enda liggi fyrir umsókn um tiltekna lóð eða lóðir. Málinu var vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar. Afgreiðslu málsins var frestað á fundi bæjarstjórn 26. nóvember sl. Tekið fyrir að nýju.

Hlé var gert á fundi kl. 17:45. Fundi var fram haldið kl. 17:46.Bæjarstjórn samþykkir að heimila framsal lóðarréttinda Kópavogsbrún 4 frá Sætrar ehf. til Tónahvarf ehf. með sex samhljóða atkvæðum. Fimm bæjarfulltrúar sátu hjá.

02

Bæjarstjórn - 1086. fundur

Lagt fram erindi sviðsstjóra umhverfissviðs dags. 12. nóvember 2013, þar sem skýrð er framvinda vegna úthlutana Kópavogsbrún 2 - 4. Framkvæmdaráð samþykkir að heimila framsal lóðarréttinda Kópavogsbrún 4 frá Sætrar ehf. til Tónahvarf ehf. Fyrir fund bæjarstjórnar liggi fyrir framkvæmdaáætlun Tónahvarfs ehf. vegna uppbyggingar Kópavogsbrún 2-4. Jafnframt samþykkir framkvæmdaráð að Sætrar ehf. hafi vilyrði til úthlutunar sambærilegs byggingarmagns lóðar og úthlutun Kópavogsbrún 4 fól í sér, enda liggi fyrir umsókn um tiltekna lóð eða lóðir. Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Hlé var gert á fundi kl. 20.30. Fundi var fram haldið kl. 20.31. Bæjarstjórn frestar afgreiðslu málsins.

03

Framkvæmdaráð - 57. fundur

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs.

Lagt fram erindi sviðsstjóra umhverfissviðs dags. 12. nóvember 2013, þar sem skýrð er framvinda vegna úthlutana Kópavogsbrún 2 - 4. Framkvæmdaráð samþykkir að heimila framsal lóðarréttinda Kópavogsbrún 4 frá Sætrar ehf. til Tónahvarf ehf. Fyrir fund bæjarstjórnar liggi fyrir framkvæmdaáætlun Tónahvarfs ehf. vegna uppbyggingar Kópavogsbrún 2-4. Jafnframt samþykkir framkvæmdaráð að Sætrar ehf. hafi vilyrði til úthlutunar sambærilegs byggingarmagns lóðar og úthlutun Kópavogsbrún 4 fól í sér, enda liggi fyrir umsókn um tiltekna lóð eða lóðir. Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.

04

Bæjarstjórn - 1074. fundur

Á fundi framkvæmdaráðs 20. mars 2013 var til umfjöllunar umsókn Sætrar ehf. kt. 620305-1620 um lóðina Kópavogsbrún 2-4. Lögð var fram umsögn skrifstofustjóra umhverfissviðs dags. 18. mars sl. $line$Í umsögninni kemur fram að Kópavogsbrún 2 var með samningi dags. í janúar 2012 úthlutað til Tónahvarfs ehf. $line$Lagt er til við framkvæmdaráð að skrifstofustjóra verði falið að ræða við Sætrar ehf. og upplýsa um stöðu málsins. Þá verði Sætrar ehf. gefinn kostur á að fá helming lóðarinnar úthlutaðri, þ.e. Kópavogsbrún 4. Framkvæmdaráð samþykkir umsögn skrifstofustjóra umhverfissviðs.$line$

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu framkvæmdaráðs einróma.

05

Framkvæmdaráð - 47. fundur

Frá skrifstofustjóra umhverfissviðs.

Framkvæmdaráð samþykkir umsögn skrifstofustjóra umhverfissviðs.

06

Framkvæmdaráð - 46. fundur

Frá skrifstofustjóra umhverfissviðs

Borist hafa tvær umsóknir um lóðina Kópavogsbrún 2-4 sem metnar eru fullnægjandi, frá Mótanda ehf., kt. 701101-3820 og Sætrar ehf., kt. 620305-1620 í samræmi við 13. gr úthlutunarreglna samþykktum í bæjarstjórn 11. október 2011 er dregið um hverjum verður gefinn kostur á lóðinni. Fulltrúi sýslumanns er mættur til að draga á milli umsækjanda. Umsókn Sætrar ehf. var dreginn sbr. gerðarbók sýslumannsins í Kópavogi. Framkvæmdaráð leggur til við bæjarstjórn að Sætrar ehf. verði úthlutað lóðinni Kópavogsbrún 2-4.