Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Gnitakór 5. Breytt deiliskipulag

Málsnúmer: 1302683

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1076. fundur

Skipulagsnefnd hafnar framlagða tillögu. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar og hafnar tillögunni með tíu samhljóða atkvæðum. Einn bæjarfulltrúi sat hjá.

02

Bæjarráð - 2682. fundur

Skipulagsnefnd hafnar framlagða tillögu. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

03

Skipulagsnefnd - 1224. fundur

Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju tillaga frá Teiknistofunni Óðinstorgi að breyttu deiliskipulagi fyrir Gnitakór 5. Í breytingunni felst að hluti af neðri hæð hússins verður breytt í sjálfstæða íbúð þannig að tvær íbúðir verða í húsinu. Eitt bílastæði bætist við á lóðinni sbr. uppdráttum í mkv. 1:100 dags. í febúrar 2013. Á fundi skipulagsnefndar 5. mars 2013 var samþykkt með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna tillöguna fyrir lóðarhöfum við Gnitakór 1, 1a, 2, 3, 4, 6 og 7 ásamt Fjallakór 4 og 6. Kynningu lauk 11. apríl 2013. Athugasemd barst frá Sverri H. Guðmundssyni og Bylgju Guðlaugsdóttur, Gnitakór 3, dags. 3.4.2013.$line$$line$Lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 11.4.2013.

Hafnað. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

04

Skipulagsnefnd - 1223. fundur

Lögð fram tillaga frá Teiknistofunni Óðinstorgi að breyttu deiliskipulagi fyrir Gnitakór 5. Í breytingunni felst að neðri hæð hússins verður breytt í sjálfstæða íbúð. Eitt bílastæði bætist við á lóðinni sbr. uppdráttum í mkv. 1:100 dags. í febúrar 2013.

Skipulagsnefnd samþykkir með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna tillöguna fyrir lóðarhöfum við Gnitakór 1, 1a, 2, 3, 4, 6 og 7 ásamt Fjallakór 4 og 6.