Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Menningarmál - staða og horfur. Tillögur frá Hafsteini Karlssyni

Málsnúmer: 1302698

Ferill máls

01

Lista- og menningarráð - 14. fundur

Eftirfarandi vísað til lista- og menningarráðs: 3. Nefndin setji fram tillögur um hvernig hagað verði samstarfi markaðsstofu og Kópavogsbæjar í atvinnu- og menningarmálum$line$4. Nefndin setji nú í vor fram hugmyndir um ljóðahátíð Jóns úr Vör sem hefjist í grunnskólum í október og ljúki með afhendingu Ljóðstafs Jóns úr Vör 21. janúar.$line$5. Lista- og menningarsjóður fái það fjármagn sem samþykktir bæjarstjórnar Kópavogs greina á um með því að færa þá liði undan sjóðnum sem settir voru þar þegar mest þurfti að skera niður.$line$6. Verkefnið Tónlist fyrir alla sem sett var á ís í niðurskurðinum verði sett í gang frá og með næstu áramótum.$line$$line$

Rætt um minnisblað Hafsteins Karlssonar. Ráðið ákveður að kalla til sín á fund hóp áhugasamra einstaklinga sem gæti komið að því að gera ljóðstaf Jóns úr Vör veglegri á næsta ári. Umræðu um minnisblaðið að öðru leyti frestað til næsta fundar.<P style="MARGIN: 0cm 0cm 10pt" class=MsoNormal><FONT face=Calibri><?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" /><o:p></o:p></FONT> </P>

02

Bæjarstjórn - 1072. fundur

Hafsteinn Karlsson leggur fram eftirfarandi tillögur:$line$Tillögur$line$1. Atvinnu- og þróunarráð og lista- og menningarráð verði sameinað í eina nefnd sem fari með þau mál sem þessar nefndir fara með nú.$line$2. Starf menningarfulltrúa verði sett á laggirnar hið fyrsta$line$3. Nefndin setji fram tillögur um hvernig hagað verði samstarfi markaðsstofu og Kópavogsbæjar í atvinnu- og menningarmálum$line$4. Nefndin setji nú í vor fram hugmyndir um ljóðahátíð Jóns úr Vör sem hefjist í grunnskólum í október og ljúki með afhendingu Ljóðstafs Jóns úr Vör 21. janúar.$line$5. Lista- og menningarsjóður fái það fjármagn sem samþykktir bæjarstjórnar Kópavogs greina á um með því að færa þá liði undan sjóðnum sem settir voru þar þegar mest þurfti að skera niður.$line$6. Verkefnið Tónlist fyrir alla sem sett var á ís í niðurskurðinum verði sett í gang frá og með næstu áramótum.$line$

Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, lagði til eftirfarandi afgreiðslu á tillögu Hafsteins Karlssonar:"Lið 1 verði hafnað. Lið 2 verði vísað til stjórnsýslusviðs. Lið 3 verði vísað til lista- og menningarráðs, atvinnu- og þróunarráðs og Markaðsstofu Kópavogs. Liðum 4 - 6 verði vísað til lista- og menningarráðs.Ármann Kr. Ólafsson"Hlé var gert á fundi kl. 18:43. Fundi var fram haldið kl. 18:50.Forseti bar upp hvern lið fyrir sig.Töluliður 1 var felldur með sex atkvæðum en fimm bæjarfulltrúar greiddu atkvæði með henni.Tillaga Ármanns Kr. Ólafssonar, bæjarstjóra, um að vísa tölulið 2 til stjórnsýslusviðs var samþykkt með átta atkvæðum en þrír bæjarfulltrúar sátu hjá.Tillaga Ármanns Kr. Ólafssonar, bæjarstjóra, um að vísa tölulið 3 til lista- og menningarráðs, atvinnu- og þróunarráðs og Markaðsstofu Kópavogs var samþykkt með 11 atkvæðum.Tillaga Ármanns Kr. Ólafssonar, bæjarstjóra, um að vísa liðum 4 - 6 til lista- og menningarráðs var samþykkt með tíu atkvæðum en einn bæjarfulltrúi sat hjá.