Brekkutún 13. Breytt deiliskipulag.
Málsnúmer: 1302745
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2695. fundur
Hafnað. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar og hafnar erindinu.
02
Skipulagsnefnd - 1228. fundur
Lagt fram að nýju erindi Árna Friðrikssonar, arkitekts, f.h. lóðarhafa. Í tillögu er gert ráð fyrir 23,5m2 sólskála á vesturhlið hússins, 3,5m x 6,7m að grunnfleti sbr. uppdráttum í mkv. 1:100 dags. 4.4.2013. Sólskáli hefur þannig minnkað um 50cm að breidd en lengst um 1,25m til norðurs frá fyrri tillögu dags. 19.2.2013.$line$$line$Einnig er byggt við húsið á þremur öðrum stöðum og glerþak kemur ofan á viðbætur sem samtals eru 14,4m2. Heildarstækkun með breytingu á sólskála frá fyrri tillögu er því 37,9m2 og hækkar nýtingarhlutfall úr 0,52 í 0,6 sbr. uppdráttum dags 19.2.2013 og 4.4.2013. Á fundi skipulagsnefndar 5.3.2013 var samþykkt með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna tillöguna fyrir lóðarhöfum við Brekkutún 9, 11, 15, 17, 19, 21 og 23 ásamt Álfatún 37. Kynningu lauk 18.4.2013. Athugasemd barst frá Hallveigu Thordarson og Emil B. Karlssyni, Brekkutúni 11, dags. 15.4.2013. Einnig lögð fram umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 7. maí 2013.
Hafnað. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs.
03
Skipulagsnefnd - 1225. fundur
Lagt fram að nýju erindi ASK arkitekta f.h. lóðarhafa Brekkutúns 13. Í breytingunni felst að byggja 21,8m2 skála á vesturhlið íbúðarhússins. Einnig er stækkað við húsið á þremur öðrum stöðum og glerþak kemur ofan á viðbætur sem samtals eru 14,4m2. Heildarstækkun er því 36,1m2 og hækkar nýtingarhlutfall úr 0,52 í 0,6 sbr. uppdráttum dags 19.2.2013. Á fundi skipulagsnefndar 5.3.2013 var samþykkt með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna tillöguna fyrir lóðarhöfum við Brekkutún 9, 11, 15, 17, 19, 21 og 23 ásamt Álfatún 37. Kynningu lauk 18.4.2013. Athugasemd barst frá Hallveigu Thordarson og Emil B. Karlssyni, Brekkutúni 11, dags. 15.4.2013.$line$$line$Lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 7. maí 2013.
Frestað. Skipulagsnefnd felur skipulags- og byggingardeild að vinna áfram að málinu í samráði við málsaðila.
04
Skipulagsnefnd - 1223. fundur
Lagt fram erindi ASK arkitekta f.h. lóðarhafa. Í breytingunni felst að byggja 21,8m2 skála á vesturhlið íbúðarhússins. Einnig er stækkað við húsið á þremur öðrum stöðum og glerþak kemur ofan á viðbætur sem samtals eru 14,4m2. Heildarstækkun er því 36,1m2 og hækkar nýtingarhlutfall úr 0,52 í 0,6 sbr. uppdráttum dags 19.2.2013.
Skipulagsnefnd samþykkir með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna tillöguna fyrir lóðarhöfum við Brekkutún 9, 11, 15, 17, 19, 21 og 23 ásamt Álfatún 37.