24. fundur.
Lagt fram.
Gunnar Ingi Birgisson lagði fram eftirfarandi bókun vegna fundargerðar íþróttaráðs:
"Eftir að hafa skoðað talningar í íþróttahúsum Kópavogsbæjar, er ljóst að nýting nokkurra íþróttamannvirkja er ekki ásættanleg. Sérstaklega á þetta við um knatthúsið og tvöfaldan íþróttasal í Kórnum. Undirritaðir skora á íþróttaráð að skoða talningarnar með það í huga að nýta íþróttamannvirkin betur. Til dæmis væri hægt að verða við óska íþróttafélagsins Gerplu um tíma fyrir yngstu iðkendurna í öðrum íþróttahúsum. Einnig mætti auka útleigu í Kórnum. Þar er algjörlega óafsakanlegt að nýta ekki íþróttamannvirki Kópavogsbæjar betur en raun ber vitni.
Gunnar Ingi Birgisson
Aðalsteinn Jónsson"
Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, lagði fram eftirfarandi bókun:
"Þær ályktanir sem bæjarfulltrúarnir Gunnar Ingi Birgisson og Aðalsteinn Jónsson draga að talningum í íþróttahúsum eru beinlínis rangar og einkennast af pólitískum ofsóknum gagnvart einu íþróttafélagi.
Ármann Kr. Ólafsson"
Una María Óskarsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun:
"Áskorun um að bæjarstjórn Kópavogs hafi forgöngu um að hefja snjóframleiðslu á skíðasvæðum höfuðborgarsvæðisins, þannig að aðstaða til skíðaiðkunar batni.
Una María Óskarsdóttir"