Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Sumarnámskeið íþróttafélaga 2013

Málsnúmer: 1303081

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2678. fundur

Tillaga um sumarnámskeið íþróttafélaga 2013, sbr. lið 6 í fundargerð.

Bæjarráð samþykkir tillöguna.

02

Íþróttaráð - 23. fundur

Lagðar fram endurskoðaðar starfsreglur íþróttaráðs um rekstur sumarnámskeiða fyrir börn, 6-14 ára, ásamt upplýsingabréfi og umsóknareyðublaði vegna starfsmanna sem félögin ráða á námskeiðin. Inn í starfsreglurnar er nú komið ákvæði um aukna upplýsingaskyldu námskeiðshaldara, þar sem gerð krafa um að hægt sé að greina þátttakendur námskeiðanna eftir kyni, aldri og heimili.

Íþróttaráð samþykkir breyttar starfsreglur sumarnámskeiðanna. Íþróttaráð hvetur jafnframt til aukins samstarfs hlutaðeigandi sviða/deilda á umgjörð sem og starfsreglum námskeiða fyrir leiðbeinendur og flokkstjóra sem starfa með börnum og unglingum í bænum á komandi sumri. Starfsmönnum falið að vinna að málinu.