Viðræður um rekstur Hrafnistu á Boðanum
Málsnúmer: 1303141
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2706. fundur
Frá sviðsstjóra menntasviðs, umsögn um erindi Hrafnistu um rekstur á Boðanum og tillaga um skipan starfshóps.
Bæjarráð samþykkir tillögu sviðsstjóra menntasviðs um skipan starfshóps. Bæjarráð skipar sviðsstjóra menntasviðs, sviðsstjóra umhverfissviðs og deildarstjóra frístundadeildar í starfshópinn. Sviðsstjóri menntasviðs sat fundinn undir þessum lið.
02
Bæjarráð - 2702. fundur
Frá Hrafnistu DAS, dags. 24. september, óskað eftir að fá að taka við rekstri félagsmiðstöðvarinnar Boðans frá næstu áramótum.
Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra menntasviðs til umsagnar.
03
Bæjarráð - 2678. fundur
Frá Hrafnistu, dags. 6. mars, óskað eftir viðræðum um að Hrafnista taki alfarið við rekstri þjónustumiðstöðvarinnar við Boðaþing, þar með talið félagsheimilið Boðann.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjóra til umsagnar.