Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Æfingatímar í skautahöllum

Málsnúmer: 1303313

Ferill máls

01

Íþróttaráð - 25. fundur

Tekið til afgreiðslu erindi frá Skautafélaginu Fálkum dagsett 17. mars sl. þar sem félagið óskaði eftir æfingatímum fyrir starfsemi sína frá hausti 2013. Starfsmönnum var falið að kanna málið frekar á síðasta fundi ráðsins.

Lagt fram minnisblað íþróttadeildar frá 14. maí þar sem fram kemur að engir lausir tímar eru í skautahöllum Reykjavíkur nema snemma á morgnanna virka daga og á laugardagskvöldum. Íþróttaráð getur ekki orðið við óskum félagsins að sinni.

02

Íþróttaráð - 24. fundur

Lagt fram erindi frá Skautafélaginu Fálkum dagsett 17. mars sl. þar sem félagið óskar eftir aðstoð bæjarins við útvegun æfingatíma fyrir starfsemi sína frá hausti 2013.

Starfsmönnum falið að vinna að málinu til næsta fundar.