Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Vettvangsferðir íþróttaráðs 2013 - Breiðablik

Málsnúmer: 1303464

Ferill máls

01

Íþróttaráð - 24. fundur

Íþróttaráð hélt áfram heimsóknum til íþróttafélaganna með fundi í Smáranum, í félagsaðstöðu Breiðabliks.$line$Aðalstjórn félagsins mætti til fundarins.

Eftri að hafa farið í stutta vettvangsferð um mannvirkið bauð Una María formaður íþróttaráðs fulltrúa Breiðabliks velkomin til fundar við ráðið.

Orri Hlöðversson formaður Breiðabliks þakkaði fyrir það tækifæri að koma til fundar við íþróttaráð. Vék hann að þremur málefnum sem hann lagði til að rædd yrðu á fundinum.
1. Skiptingu bæjarins í athafnasvæði/upptækusvæði og með hvaða hætti það væri hugsað.
2. Aukið samstarf við grunnskóla með áherslu á tímann frá 14-16 og
3. Úthlutun æfingatíma í íþróttamannvirkjum bæjarins næsta haust .
Þá kynnti hann niðurstöður könnunar sem framkvæmd var af Rannsókn og Greiningu annars vegar um ánægju iðkenda Breiðabliks með félagið sitt sem og afstöðu iðkenda Breiðabliks til vímaefnanotkunar ungmenna. Þar kemur félagið mjög vel út til samanburðar við UMSK og landið allt. Góðar umræður urðu um málefni félagsins og mikilvægi íþróttafélaga í samfélaginu. Fulltrúar íþróttaráðs þökkuðu fyrir góðan og fræðandi fund.