Ásbraut, endurgerð götu.
Málsnúmer: 1304098
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2693. fundur
Miðvikudaginn 19. júní sl. voru opnuð tilboð í verkið "Ásbraut Kópavogi - endurgerð 2013 gata og veitur," skv. útboðsgögnum gerðum af verkfræðistofunni Eflu, Gagnaveitu Reykjavíkur og Orkuveitu Reykjavíkur dags. í maí 2013. Útboðið var opið og bárust 4 tilboð. $line$Framkvæmdaráð heimilar að leitað verði samninga um verkið við lægstbjóðanda Steingarð ehf og Faxaverk ehf. um verkið "Ásbraut Kópavogi - endurgerð 2013 gata og veitur," sbr. samþykkt stofnkostnaðaryfirlit vegna fjárhagsáætlunar 2013, dags. 24. júní 2013. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs.$line$
Bæjarráð samþykkir að leitað verði samninga um verkið við lægstbjóðanda Steingarð ehf og Faxaverk ehf. um verkið "Ásbraut Kópavogi - endurgerð 2013 gata og veitur," sbr. samþykkt stofnkostnaðaryfirlit vegna fjárhagsáætlunar 2013, dags. 24. júní 2013.
02
Framkvæmdaráð - 53. fundur
Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar
Miðvikudaginn 19. júní sl. voru opnuð tilboð í verkið "Ásbraut Kópavogi - endurgerð 2013 gata og veitur," skv. útboðsgögnum gerðum af verkfræðistofunni Eflu, Gagnaveitu Reykjavíkjur og Orkuveitu Reykjavíkur dags. í maí 2013. Útboðið var opið og bárust 4 tilboð. Framkvæmdaráð heimilar að leitað verði samninga um verkið við lægstbjóðanda Steingarð ehf og Faxaverk ehf. um verkið "Ásbraut Kópavogi - endurgerð 2013 gata og veitur," sbr. samþykkt stofnkostnaðaryfirlit vegna fjárhagsáætlunar 2013, dags. 24. júní 2013. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs.
03
Bæjarráð - 2681. fundur
Framkvæmdaráð veitir heimild til að bjóða út í opnu útboði framkvæmdir við endurgerð eldri götu og veitulagna í Ásbraut milli Hábrautar og Kársnesbrautar.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu framkvæmdaráðs. Ólafur Þór Gunnarsson vék af fundi undir þessum lið.
04
Framkvæmdaráð - 48. fundur
Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar
Framkvæmdaráð veitir heimild til að bjóða út í opnu útboði framkvæmdir við endurgerð eldri götu og veitulagna í Ásbraut milli Hábrautar og Kársnesbrautar.