Gnitaheiði 4-6. Breytt deiliskipulag.
Málsnúmer: 1304187
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1083. fundur
Tillaga að breyttu deiliskipulagi við Gnitaheiði 4 og 6, sem frestað var á fundum bæjarráðs þann 11. og 25. júlí sl., var lögð fram að nýju og samþykkt í bæjarráði þann 26. september.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs með sjö atkvæðum og samþykkir tillögu að breyttu deiliskipulagi Gnitaheiði 4 - 6. Þrír bæjarfulltrúar sátu hjá við afgreiðslu málsins.
02
Bæjarráð - 2699. fundur
Lögð fram að nýju tillaga að breyttu deiliskipulagi við Gnitaheiði 4 og 6, sem frestað var á fundum bæjarráðs þann 11. og 25. júlí sl.
Bæjarráð samþykkir tillögu að breyttu deiliskipulagi með fjórum atkvæðum. Einn bæjarfulltrúi sat hjá.
03
Bæjarráð - 2695. fundur
Lögð fram að nýju tillaga að breyttu deiliskipulagi við Gnitaheiði 4 og 6, sem frestað var á fundi bæjarráðs þann 11. júlí sl.
Frestað og skipulagsstjóra falið að vinna frekar í málinu.
04
Bæjarráð - 2694. fundur
Skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu að breyttu deiliskipulagi við Gnitaheiði 4 og 6 og vísar henni til afgreiðslu bæjarráðs.
Bæjarráð frestar afgreiðslu skipulagsnefndar.
05
Skipulagsnefnd - 1227. fundur
Að lokinni kynningu er lagt fram að nýju erindi Sveins Ívarssonar, arkitekts, f.h. lóðarhafa að breyttu deiliskipulagi fyrir Gnitaheiði 4-6. Í breytingunni felst að fyrirhuguð bygging fer út úr byggingarreit sbr. framlagðar teikningar í mkv. 1:100 dags. í apríl 2013. Á fundi skipulagsnefndar 16.4.2013 var samþykkt með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna tillöguna fyrir lóðarhöfum Gnitaheiði 1, 2, 3, 8, 8a, 10, 10a, 12, 12a, 14, 14a, Heiðarhjalla 9, 13, 15, og 17, Hólahjalla 11 og 12. Kynningu lauk 10.6.2013. Athugasemdir og ábendingar bárust frá: Þóri Sigfússyni, Hólahjalla 11, dags. 9.6.2013; Kristínu Hjaltadóttur og Bjarna Gunnarssyni, Gnitaheiði 5, dags. 6.6.2013; Hannesi Eyvindssyni, Gnitaheiði 1, dags. 8.6.2013; Herði Jónssyni og Ólínu Klöru Jóhannsdóttur, Gnitaheiði 3, dags. 10.6.2013; Sigurði H. Stefnissyni og Heklu Ívarsdóttur, Digranesheiði 18, dags. 10.6.2013; Gunnari Jónssyni og Kristínu Þórisdóttur, Hólahjalla 12, dags. 6.6.2013; Herði Jónssyni, Ólínu Klöru Jóhannsdóttur, Ásdísi Kr. Smith og Jóni Páli Björnssyni, Gnitaheiði 3, dags. 10.6.2013; Tryggva Þóri Ólafssyni og Brynhildi Baldursdóttur, Gnitaheiði 8, dags. 9.6.2013.$line$$line$Lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 2.7.2013.
Vilhjálmur Einarsson vék af fundi undir þessum lið.Skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu að breyttu deiliskipulagi við Gritaheiði 4 og 6. Vísað til afgeiðslu bæjarráðs.
06
Skipulagsnefnd - 1224. fundur
Lagt fram erindi Sveins Ívarssonar, arkitekts, f.h. lóðarhafa að breyttu deiliskipulagi fyrir Gnitaheiði 4-6. Í breytingunni felst að fyrirhuguð bygging fer út úr byggingarreit sbr. framlagðar teikningar í mkv. 1:100 dags. í apríl 2013.
Skipulagsnefnd samþykkir með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna tillöguna fyrir lóðarhöfum Gnitaheiði 1, 2, 3, 8, 8a, 10, 10a, 12, 12a, 14, 14a, Heiðarhjalla 9, 13, 15, og 17, Hólahjalla 11 og 12.