Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Búðakór 1. Hverfisbarinn (Leikinn ehf). Beiðni um umsögn vegna umsóknar um rekstrarleyfi

Málsnúmer: 1304561

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2694. fundur

Frá laganema, dags. 8. júlí, umsögn um umsókn um rekstrarleyfi, tekin upp að nýju vegna nýs erindis umsækjanda. Á fundi bæjarráðs þann 6. júní 2013 var samþykkt umsögn um umsókn Leikinns ehf. þess efnis að opnunartími staðarins væri til kl. 23:30 virka daga og til kl. 01:00 um helgar. Eins og fram kom í erindi umsækjanda dagsett 12. júní 2013 sem hann sendi í kjölfar ákvörðunar bæjarráðs þá óskar hann þess að umsögnin verði tekin til endurskoðunar, með hliðsjón af framsettum rökstuðningi, og heimilaður verði opnunartími til kl. 01:00 alla daga.$line$Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 staðfestir sveitarstjórn, sem umsagnaraðili, að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um. $line$

Bæjarráð staðfestir að staðsetning er í samræmi við gildandi skipulag og afgreiðslutími er í samræmi við ákvæði 2. mgr. 25. gr. reglugerðar nr. 1127/2007 um lögreglusamþykktir.

02

Bæjarráð - 2690. fundur

Frá bæjarlögmanni, mál sem frestað var í bæjarráði þann 30. maí sl., lagt fram að nýju bréf sýslumannsins í Kópavogi, dags. 30. apríl, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Leikinn ehf., kt. 660213-0900, um nýtt rekstrarleyfi til að mega reka veitingahús, skemmtistað, veisluþjónustu og veitingaverslun, kaffihús og krá í flokki III, á staðnum Hverfisbarinn, að Búðakór 1, 203 Kópavogi, skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 23. gr. rgl. nr. 585/2007.

Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti með þeim takmörkunum að opnunartími virka daga verði til 23.30 og um helgar til kl. 01.00. Bæjarráð staðfestir að staðsetning er í samræmi við gildandi skipulag og afgreiðslutími er í samræmi við ákvæði 2. mgr. 25. gr. reglugerðar nr. 1127/2007 um lögreglusamþykktir. Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum. Tveir bæjarfulltrúar sátu hjá.Ómar Stefánsson og Pétur Ólafsson lögðu fram eftirfarandi bókun:<EM>"Við teljum eðlilegt að umsóknin verði samþykkt eins og hún er lögð fram til reynslu til eins árs.</EM><EM>Ómar Stefánsson, Pétur Ólafsson"</EM>

03

Bæjarráð - 2689. fundur

Frá bæjarlögmanni, lagt fram bréf sýslumannsins í Kópavogi, dags. 30. apríl, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Leikinn ehf., kt. 660213-0900, um nýtt rekstrarleyfi til að mega reka veitingahús, skemmtistað, veisluþjónustu og veitingaverslun, kaffihús og krá í flokki III, á staðnum Hverfisbarinn, að Búðakór 1, 203 Kópavogi, skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 23. gr. rgl. nr. 585/2007.

<P style="MARGIN: 0cm 0cm 0pt" class=MsoNoSpacing><SPAN style="FONT-FAMILY: " FONT-SIZE: Arial?,?sans-serif?; 12pt?>Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins.</P></SPAN>