Kópavogsbraut 1a-c, Kópavogstún 3, 5, 7 og 9. Breytt deiliskipulag.
Málsnúmer: 1305011
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2695. fundur
Skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu ásamt umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 23.7.2013. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar og samþykkir tillöguna.
02
Skipulagsnefnd - 1228. fundur
Að lokinni kynningu er lagt fram að nýju erindi ASK arkitekta ehf., f.h. lóðarhafa, að breyttu deiliskipulagi. Á lóðinni Kópavogstún 1a-c er hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð og tvö fjölbýlishús með þjónustuíbúðum fyrir eldri borgara. Í breytingunni felst:$line$a. Hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð fái heimild til stækkunar um allt að 34 hjúkrunarrými$line$b. Gert er ráð fyrir nýrri þjónustumiðstöð fyrir aldraða sunnan Kópavogsbrautar 1b (milli fyrirhugaðra húsa við Kópavogstún 5 og 9)þ.e. Kópavogstún 7. Áætlað er að þjónustubyggingin verði ein hæð auk kjallara um 750 m2 að grunnfleti með aðkomu frá Kópavogstúni$line$c. Íbúðum í fyrirhuguð húsum við Kópavogstún 3 og 5 er fjölgað um samtals 6 íbúðir, fjöldi hæða húsa og áætlað byggingarmagn breytist ekki miðað við gildandi deiliskipulag og verða efstu hæðirnar á báðum húsunum inndregnar sem er breyting frá gildandi deiliskipulagi.$line$d. Íbúðum í fyrirhuguðu húsi við Kópavogstún 9 er fækkað um 6 íbúðir húsið lækkað um eina hæð miðað við gildandi deiliskipulag og verður efsta hæðin inndregin sem er breyting frá gildandi deiliskipulagi.$line$e. Fjöldi og fyrirkomulag bílastæða breytist$line$$line$Tillagan er sett fram á uppdætti í mkv. 1:2000 ásamt skýringarmyndum og greinargerð dags. 7. maí 2013.$line$Tillagan var auglýst í Fréttablaðinu 1.6.2013 og í Lögbirtingablaðinu 3.6.2013. Kynningu lauk 16.7.2013. Athugasemdir bárust. Enn fremur lögð fram tillaga Skipulags- og byggingardeildar að umsögn við framkomnar athugasemdir og ábendingar. Er umsögnin dags. 19. júlí 2013.
Skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu ásamt umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 23.7.2013. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs.
03
Bæjarstjórn - 1077. fundur
Lagt fram erindi Ask arkitekta ehf., f.h. lóðarhafa, að breyttu deiliskipulagi. Á lóðinni Kópavogstún 1a-c er hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð og tvö fjölbýlishús með þjónustuíbúðum fyrir eldri borgara. Tillagan gerir ráð fyrir að annars vegar sé hægt að stækka/hækka núverandi byggingar og hins vegar að byggja viðbyggingu á allt að 4 hæðum sem tengist núverandi byggingu. Þá er lagt til að lóðinni Kópavogstún 3, 5, 7 og 9 verði skipt í þrjár lóðir á eftirfarandi hátt: $line$$line$Lóðin Kópavogstún 3-5 verði fjölbýlishúsalóð með tveimur 6 hæða húsum, 27 íbúðir í hvoru húsi, efsta hæðin inndregin. Bílastæðakrafan er 1 stæði/íbúð í bílakjallara og 0,6 stæði/íbúð á landi. $line$$line$Lóðin Kópavogstún 7 verði þjónustumiðstöð fyrir aldraða á einni hæð og skal aðlaga sig að landinu. Kjallari er leyfður. Bílastæðakrafan er 1 stæði á 75 m2.$line$$line$Lóðin Kópavogstún 9 verði fjölbýlishúsalóð með húsi á fimm hæðum, 16 íbúðum og efsta hæðin inndregin. Bílastæðakrafan er 1 stæði/íbúð í bílakjallara og 0,6 stæði/íbúð á landi.$line$Breyting frá samþykktu skipulagi: Heildarfjöldi Íbúða í fjölbýlishúsunum þremur er óbreyttur, heildarbyggingarmagn í fjölbýlishúsum er óbreytt en bílastæðakrafan er minnkuð úr 2,31 í 1,6 fyrir öll fjölbýlishúsin.$line$$line$Íbúðum í Kópavogstúni 3 og 5 er fjölgað úr 24 í 27 íbúðir í húsi og 6. hæðin er nú inndregin. Kópavogstún 9 er minnkað, íbúðum fækkað úr 22 í 16 og húsið lækkað um eina hæð. Uppdráttur dags. í maí 2013.$line$$line$Skipulagsnefnd samþykkir með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að kynna framlagða tillögu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagnefndar einróma.
04
Bæjarráð - 2686. fundur
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
05
Skipulagsnefnd - 1225. fundur
Lagt fram erindi Ask arkitekta ehf., f.h. lóðarhafa, að breyttu deiliskipulagi. Á lóðinni Kópavogstún 1a-c er hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð og tvö fjölbýlishús með þjónustuíbúðum fyrir eldri borgara. Tillagan gerir ráð fyrir að annars vegar sé hægt að stækka/hækka núverandi byggingar og hins vegar að byggja viðbyggingu á allt að 4 hæðum sem tengist núverandi byggingu. Þá er lagt til að lóðinni Kópavogstún 3, 5, 7 og 9 verði skipt í þrjár lóðir á eftirfarandi hátt: $line$Lóðin Kópavogstún 3-5 verði fjölbýlishúsalóð með tveimur 6 hæða húsum, 27 íbúðir í hvoru húsi, efsta hæðin inndregin. Bílastæðakrafan er 1 stæði/íbúð í bílakjallara og 0,6 stæði/íbúð á landi.$line$Lóðin Kópavogstún 7 verði þjónustumiðstöð fyrir aldraða á einni hæð og skal aðlaga sig að landinu. Kjallari er leyfður. Bílastæðakrafan er 1 stæði á 75 m2.$line$Lóðin Kópavogstún 9 verði fjölbýlishúsalóð með húsi á fimm hæðum, 16 íbúðum og efsta hæðin inndregin. Bílastæðakrafan er 1 stæði/íbúð í bílakjallara og 0,6 stæði/íbúð á landi.$line$Breyting frá samþykktu skipulagi: Heildarfjöldi Íbúða í fjölbýlishúsunum þremur er óbreyttur, heildarbyggingarmagn í fjölbýlishúsum er óbreytt en bílastæðakrafan er minnkuð úr 2,3 í 1,6 fyrir öll fjölbýlishúsin. Íbúðum í Kópavogstúni 3 og 5 er fjölgað úr 24 í 27 íbúðir í húsi og 6. hæðin er nú inndregin. Kópavogstún 9 er minnkað, íbúðum fækkað úr 22 í 16 og húsið lækkað um eina hæð. Uppdráttur dags. í maí 2013.
Skipulagsnefnd samþykkir með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að kynna framlagða tillögu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.