Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Bæjarstjórn - 1078. Fundur haldinn 28.5.2013.

Málsnúmer: 1305018F

Ferill máls

01

Skipulagsnefnd - 1227. fundur

1202610 - Aðalskipulag Kópavogs 2012-2024$line$Tillaga að Aðalskipulagi Kópavogs 2012 - 2024, dags. 12. apríl 2013, greinargerð, umhverfisskýrsla, þéttbýlisuppdráttur í mkv. 1:10.000 og sveitarfélagsuppdráttur í mkv. 1:50.000.$line$Skipulagsnefnd samþykkti að framlögð tillaga að Aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024, greinargerð, umhverfisskýrsla, þéttbýlisuppdráttur í mkv. 1:10.000 og sveitarfélagsuppdráttur í mkv. 1:50.000 dags. 12. apríl 2012 verði auglýst í samræmi við 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og send Skipulagsstofnun til afgreiðslu.$line$Bæjarstjórn frestaði afgreiðslu málsins á síðasta fundi sínum. $line$Lögð fram lögfræðiálit sem óskað var eftir á síðasta fundi bæjarstjórnar.$line$Gunnar Ingi Birgisson og Aðalsteinn Jónsson drógu til baka breytingartillögu um að núgildandi deiliskipulag í Stapaþingi verði ekki fellt út úr Aðalskipulagi 2012 - 2024, sem lögð var fram á síðasta fundi og lögðu fram eftirfarandi bókun:$line$"Undirritaðir samþykkja að tillaga að Aðalskipulagi Kópavogs fari í auglýsingu, en eru á móti því að deiliskipulag á svokölluðum Bolabás verði fellt út. Ástæður þessarar afstöðu er að í fyrsta lagi rýrnar eignastaða Kópavogsbæjar og einnig er að okkar mati uppi lögfræðileg álitamál um þessa aðgerð.$line$Gunnar Ingi Birgisson, Aðalsteinn Jónsson"$line$Bæjarstjórn samþykkir einróma að tillaga að Aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024, greinargerð, umhverfisskýrsla, þéttbýlisuppdráttur í mkv. 1:10.000 og sveitarfélagsuppdráttur í mkv. 1:50.000 dags. 12. apríl 2012 verði auglýst í samræmi við 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og send Skipulagsstofnun til afgreiðslu. $line$$line$$line$1301183 - Vatnsendahlíð. Tillaga að breyttu deiliskipulagi.$line$Tillögunni var frestað á síðasta fundi bæjarstjórnar. Tekið fyrir að nýju.$line$Bæjarstjórn samþykkir framlagða tillögu einróma. $line$$line$$line$1203144 - Dalvegur - hringtorg, breytt deiliskipulag$line$Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir framlagða tillögu. Lögð fram að nýju tillaga skipulags- og byggingardeildar að breyttu deiliskipulagi fyrir Dalveg austan Fífuhvammsvegar að Dalvegi 30. Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu dags. 7. maí 2013 ásamt umsögn og vísaði tillögunni til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$Bæjarstjórn samþykkir með átta atkvæðum tillögu að breyttu deiliskipulagi á Dalvegi austan Fífuhvammsvegar. Þrír bæjarfulltrúar sátu hjá við afgreiðslu málsins.$line$Guðríður Arnardóttir lagði fram eftirfarandi bókun f.h. bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar:$line$"Undirrituð fulltrúar Samfylkingarinnar sitja hjá og telja að fremur hefði átt að setja hringtorg við Dalveg nr. 18 en slíkt hefði betur tryggt öryggi vegna forgangsaksturs og útkalls lögreglu. Á þetta hefur lögreglan m.a. margoft bent á.$line$Guðríður Arnardóttir, Hafsteinn Karlsson, Pétur Ólafsson"$line$$line$1202248 - Kosningar í skipulagsnefnd$line$Helga Jónsdóttir kjörin aðalmaður í stað Guðmundar Arnar Jónssonar í skipulagsnefnd. Tjörvi Dýrfjörð kjörinn varamaður í stað Helgu Jónsdóttur.