Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Bolaöldur, aksturskennslusvæði og vélhjólaakstursbraut. Breytt deiliskipulag.

Málsnúmer: 1305098

Ferill máls

01

Skipulagsnefnd - 1226. fundur

Lögð fram lýsing á skipulagsverkefni og matslýsingu fyrir deiliskipulag og vélhjólabraut við Bolaöldur. Deiliskipulagið tekur á þremur lóðum. Innan þeirra verður aksturssvæði fyrir vélíþróttaklúbbinn VÍK, sem þegar er á svæðinu, ökugerði fyrir ökukennslu fyrir Ökukennarafélag Íslands. Á milli lóðanna verður lóð til að byggja á þjónustumannvirki fyrir báða aðila. Óskað er eftir umsögn um erindið.

Ekki eru gerðar athugasemdir við framlagða verkefnalýsingu en Kópavogsbær áskilur sér rétt til að gera athugasemdir við deiliskipulagstillöguna þegar hún verður kynnt á síðari stigum.